Snappað um notendastýrða persónulega aðstoð

Hallgrímur Eymundsson snappar í dag. Mynd: facebooksíða NPA miðstöðvarinnar.
Hallgrímur Eymundsson snappar í dag. Mynd: facebooksíða NPA miðstöðvarinnar.

Næstu daga og fram til 7. maí, munu NPA notendur skiptast á að sjá um snapp NPA miðstöðvarinnar, npamidstodin. Að sögn Rúnars Björns Herrera Þorkelssonar, formanns stjórnar stöðvarinnar eru það einstaklingar sem nota notendastýrða persónulega aðstoð sem búa til snöppin og ættu þau að gefa góða innsýn í hversu mikilvæg notendastýrð persónuleg aðstoð sé til að þessir einstaklingar geti lifað sjálfstæðu lífi.

Skagfirðingurinn Hallgrímur Eymundsson tölvunarfræðingur, sá um snappið í gær og mun halda því áfram í dag en hann heldur heim á leið frá Tælandi í dag.

Rúnar segir að frumvarp velferðarráðherra um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, þar sem m.a. er kveðið á um lögfestingu NPA (grein 11) hafi verið lagt fyrir Alþingi í byrjun apríl 2017. Frumvarpið verður til meðferðar á Alþingi á næstunni.

Fleiri fréttir