Starfrækja Náttúrustofu Norðurlands vestra í sameiningu

Náttúrustofa Norðurlands vestra. Mynd: ja.is
Náttúrustofa Norðurlands vestra. Mynd: ja.is

Sveitarfélögin Skagaströnd, Skagafjörður, Húnaþing vestra og Akrahreppur hafa ákveðið að starfrækja í sameiningu Náttúrustofu Norðurlands vestra, ásamt öðrum sveitarfélögum á svæðinu sem kunni að gerast aðilar að stofnuninni. Sveitarfélögin munu að lágmarki leggja til 30% af rekstrarkostnaði náttúrustofunnar á móti framlagi ríkisins og mun skipting framlaganna verða í hlutfalli við íbúafjölda þeirra.

Sveitarstjórn Skagastrandar ræddi á dögunum tillögu að samkomulagi um samstarf sveitarfélaganna um Náttúrustofu Norðurlands vestra og samþykkti samkomulagið.

Í september 2015 voru þessi fjögur sömu sveitarfélög sammála um að standa saman að því að efla og tryggja rekstur Náttúrustofu Norðurlands vestra en rekstur hennar hafi þá legið niðri. Húnaþing vestra og Skagaströnd settu það skilyrði að hluti starfseminnar yrði í þeim sveitarfélögum.

Náttúrustofa Norðurlands vestra er rannsóknarstofnun á sviði náttúrufræða og tók til starfa í febrúar árið 2000. Stofan er staðsett á Sauðárkróki en starfsvæði hennar afmarkast af Hrútafirði í vestri og Tröllaskaga í austri.

Heimild: huni.is

Fleiri fréttir