Styrkir til meistaranema

Samband íslenskra sveitarfélaga veitir nú í annað sinn  allt að þremur meistaranemum styrki  til að vinna lokaverkefni á sviði sveitarstjórnarmála sem tengjast stefnumörkun sambandsins 2014-2018. Til úthlutunar er að þessu sinni allt að 750.000 kr. og stefnt er að því að veita þrjá styrki eftir því sem kemur fram á heimasíðu sambandsins

Í umsókn skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við stefnumörkun sambandsins. Heimilt er að tilgreina verkefni þó svo að þau séu ekki í skjali yfir áhersluþætti við styrkveitingar 2017 en verkefnið verður þó að eiga góða skírskotun til stefnumörkunarinnar.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir