Þekkir þú þennan bæ
Meðfylgjandi mynd hefur verið til umræðu á Facebook-síðunni, „gamlar ljósmyndir“ og var Feykir beðinn um að athuga hvort lesendur gætu glöggvað sig á henni. Myndin var tekin um 1897 af Johannes Klein, dönskum málara sem var á ferð um Ísland og sögð tekin í Austur-Húnavatnssýslu. Myndin hefur þegar birst á Húna en engar hugmyndir hafa komið frá lesendum um hvar bærinn sé.
Ein tilgáta um myndina er að fjallið lengst til hægri væri austurhlíðin á Mælifelli í Skagafirði. Tilgátan þykir afskaplega ósennileg vegna þess að ekkert strýtumyndað fjall er til sunnan við Mælifell. Í ljósi þess að erfitt er að átta sig á fjarlægð í myndinni hafa sumir bent á að þetta gætu einfaldlega verið hólar, ekki fjöll. Á milli eru einhverjar hæðir og svo virðist sem að fyrir neðan þær sé á eða lækur.
Nú kann vel að vera að þetta sé ekki bær, heldur sel og það sé löngu sokkið í jörð, gróið yfir það. Þá er fátt orðið eftir til skilnings á staðháttum. Eitt kann þó að vera áhugavert og það er litla klettabeltið hægra megin við miðja mynd. Má vera að það kveiki í hugsuninni hjá einhverjum. Taka verður með í vangavelturnar að hugsanlega er myndin spegluð.
Þeir sem hafa einhverja hugmynd eða tilgátu um myndina eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á ritstjórn Feykis með rökstuðningi um vissu sína. feykir@feykir.is