Þorrablót á svæðinu skipta tugum

Frá þorrablóti Skagfirðingafélagsins um síðustu helgi. Mynd: Lúlla
Frá þorrablóti Skagfirðingafélagsins um síðustu helgi. Mynd: Lúlla

Það hefur vart farið framhjá neinum að þorrinn er genginn í garð. Þorrablótin sem haldin eru á Norðurlandi vestra skipta einhverjum tugum, auk þess sem átthagafélög syðra halda sum hver þorrablót fyrir brottflutta.

Um síðustu helgi var m.a. þorrablót í Fljótum, sem venju samkvæmt var haldið á bóndadag. Þar, líkt og annars staðar í Skagafirði, tíðkast sá siður að hvert heimili komi með matinn í sínu trogi á blótið. Þá voru m.a. haldin þorrablót í Ásgarði í Lýtingsstaðahreppi hinum forna og á Blönduósi. Einnig komu Skagfirðingar syðra saman á þorrablóti Skagfirðingafélagsins.

Meðfylgjandi myndir tók Halldór G. Hálfdánarson á þorrablóti Fljótamanna á Ketilási og Auður Hreinsdóttir (Lúlla) á þorrablóti Skagafirðingafélagsins í Reykjavík. Feykir hvetur lesendur til að senda myndir frá þorrablótum á netfangið feykir@feykir.is.

Fleiri fréttir