Þórunn í krókódílsbúning
Þórunn Sveinsdóttir fór með 3. flokk kvenna í knattspyrnu á Gothia cup í Svíþjóð á dögunum. Lofaði Þórunn stelpunum að ef þær kæmust í 16 liða úrslit myndi hún mæta í krókódílsbúning á næsta heimaleik þeirra.
Það er skemmst frá því að segja að stúlkurnar komust í 16 liða úrslit og í kvöld mun Þórunn mæta á leik hjá stelpunum og skemmta þeim og áhorfendum með því að dansa, íklædd áðurnefndum búningi, klappstýrudansa á meðan á leik stendur. Við hvetjum alla til að mæta og hvetja stelpurnar með Þórunni.