Vegna viðgerðar á stofnlögn hitaveitu verður heitavatnslaust í Hlíðar- og Túnahverfi á Sauðárkróki í dag, miðvikudaginn 19. júlí, frá kl 16 og fram eftir nóttu. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Vinna við stefnumótun íþróttahreyfingarinnar heldur áfram af krafti og er nú komið að næsta áfanga í ferlinu. Um þessar mundir er fundað með fulltrúum íþróttahéraða, félaga og öðrum áhugasömum á Norðurlandi vestra, þar sem kallað er eftir breiðari þátttöku í mótun framtíðarsýnarinnar. Fundur verður haldinn í Fjölbraustaskóla Norðurlands vestra mánudaginn 23. mars frá klukkan 17:00-19:00.
Leik Tindastóls og Álftaness í Bónus deild karla sem fara átti fram í Síkinu í kvöld hefur verið frestað vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Það hefur ekki farið framhjá neinum að færð og veður hefur verið að stríða landanum síðustu daga, heiðar lokaðar og gular viðvaranir í kortunum dag eftir dag.
Í gærkvöldi var samþykktur glæsilegur framboðslisti Framsóknar og annarra framfarasinna í Húnabyggð. Oddviti listans er Grímur Rúnar Lárusson, lögfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi og í öðru sæti er Jenný Lind Gunnarsdóttir, sérkennslustjóri og tengiliður farsældar.
Ragnar Helgason hefur verið ráðinn í starf ferða-, menningar- og viðburðaverkefna. Alls bárust 12 umsóknir um starfið, þar af dró einn umsókn sína til baka.
Kosningar til sveitastjórna eru alltaf ákveðin tímamót, krossgötur þar sem við þurfum bæði að líta til baka yfir farinn veg, en einnig til framtíðar og skoða ólíka kosti, hvert viljum við fara og hver er líka á leiðinni þangað.
Kosningar til sveitastjórna eru alltaf ákveðin tímamót, krossgötur þar sem við þurfum bæði að líta til baka yfir farinn veg, en einnig til framtíðar og skoða ólíka kosti, hvert viljum við fara og hver er líka á leiðinni þangað.
Fróðlegt hefur verið að fylgjast að undanförnu með umræðum erlendis, bæði í röðum fjölmiðla, stjórnmálamanna og samtaka, eftir að ríkisstjórnin tilkynnti að þjóðaratkvæði um það hvort sótzt verði eftir inngöngu í Evrópusambandið (eða eins og stjórnin kýs að kalla það, „áframhaldandi aðildarviðræður“) færi fram 29. ágúst næstkomandi. Víða hefur það verið sagður einn helzti kosturinn fyrir sambandið að Ísland væri ríki sem myndi greiða með sér til þess.
Senn líður að kosningum til sveitarstjórna í landinu þar sem íbúar velja sér fulltrúa til að hafa umsjón með sameiginlegum eignum þeirra, ásamt því að reka lögbundna þjónustu og stuðla að uppbyggingu, samfélaginu til hagsbóta. Hér í Skagafirði mun Miðflokkurinn bjóða fram lista í fyrsta sinn og svara með því ákalli íbúa um breytingar. Við munum leggja áherslu aðhald í fjármálum sveitarfélagsins, um leið og lögbundin grunnþjónusta verður sett í forgang. Eitt helsta verkefni kjörinna fulltrúa er að fara vel með fjármuni þá sem til ráðstöfunar eru, rétt eins og flestir reyna að gera í heimilisbókhaldi sínu.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Einar Örn Jónsson (1975) ólst upp á Blönduósi en býr nú í Reykjavík. Hljóðfæri Einars eru píanó eða hljómborð en það að vera þátttakandi í Í svörtum fötum ævintýrinu segir hann kannski ekki hafa verið afrek en það hafi verið ótrúlega skemmtileg upplifun. „Ég hef líka verið svo heppinn að fá að spila með mörgum af bestu tónlistarmönnum landsins. En stoltastur verður maður af að heyra lögin sín í útvarpinu. Ætli Jólin eru að koma sé ekki mesta afrekið!“