Tinna Björk ráðin verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Tinna Björk Arnardóttir verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Mynd: Skjáskot úr Föstudagsþætti N4.
Tinna Björk Arnardóttir verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Mynd: Skjáskot úr Föstudagsþætti N4.

Tinna Björk Arnardóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Sauðárkróki. Á heimasíðu Nmi.is segir að hennar sérþekking sé alþjóðaviðskipti, frumkvöðlastyrkir, fyrirtækja- og hugmyndaþróun, handleiðsla, námskeið, nýsköpun og frumkvöðlar, stuðningsverkefni. Sjónvarpsstöðin N4 tók viðtal við Tinnu Björk í Föstudagsþættinum sem hægt er að skoða hér fyrir neðan.

Karl Eskil Pálsson ræðir við Tinnu Björk sem búin er að koma sér fyrir á Króknum. Hún starfar fyrir Impru sem er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og fyrirtæki en hennar starfssvæði er aðallega Norðurland vestra þó landið allt sé undir.

Sjá má viðtal Karls Eskils HÉR

Fleiri fréttir