Tveir fyrirlestrar á Hólum
Háskólinn á Hólum býður upp á tvo áhugaverða fyrirlestra í þessari viku. Fyrri fyrirlesturinn, sem haldinn verður miðvikudaginn 27. september kl. 15:30, fjallar um notkun samfélagsmiðla í markaðssetningu viðburða og ferðaþjónustu. Þar verður meðal annars fjallað um dæmi um notkun samfélagsmiðla við markaðssetningu ferðaþjónustu og viðburða í Finnlandi.
Seinni fyrirlesturinn verður haldinn fimmtudaginn 28. september kl. 20.00. Ber hann yfirskriftina Hestavelferð í ferðaþjónustu. Á heimasíðu skólans segir að erindið höfði til allra áhugamanna um hesta og hestamennsku, ekki þó síst þeirra sem tengjast hestaferðaþjónustu með einum eða öðrum hætti eða ferðast sjálfir á hestum. Það er Outi Kähkönen, lektor við Multidimensional Tourism Institute, Lapland University of Applied Sciences, sem flytur báða fyrirlestrana.
Báðir fyrirlestrarnir verða haldnir í stofu 302 í aðalbyggingu Háskólans á Hólum.
Nánari upplýsingar um fyrirlestrana má nálgast hér:
http://holar.is/visindi_og_grautur_opinn_fyrirlestur_3 og http://holar.is/hestavelferd_i_ferdathjonustu_opinn_fyrirlestur