Ungt fólk og lýðræði

Dagana 5.-7. apríl mun UMFÍ standa fyrir ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði og er þetta í níunda sinn sem UMFÍ stefnur fyrir slíkri ráðstefnu. Að þessu sinni verður hún haldin á Hótel Laugarbakka í Miðfirði.  Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er EKKI BARA FRAMTÍÐIN – UNGT FÓLK, LEIÐTOGAR NÚTÍMANS. 

Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 80 manns eða tvo þátttakendur frá hverju ungmennaráði auk starfsmanns. Þátttakendur yngri en 18 ára þurfa að vera í fylgd fullorðins einstaklings.
Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern einstakling. Innifalið eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn.
 
Ungmennaráð UMFÍ hefur veg og vanda að ráðstefnunni. Smelltu hér til þess að kynna þér dagskrá ráðstefnunnar. Smelltu hér til þess að skrá þig.

Fleiri fréttir