Út að austan

Drangey: Mynd Jón Hilmarsson

Áhugaljósmyndararnir Gunnar Freyr Steinsson og Jón Rúnar Hilmarsson halda ljósmyndasýningu á Hofsósi dagana 18. - 21. júní 2009. Á sýningunni, sem ber yfirskriftina Út að austan, verður á fjórða tug mynda sem allar eru teknar á Hofsósi eða í nánasta nágrenni.

 

Sýningin verður haldin í Grunnskólanum Hofsósi í tengslum við Jónsmessuhátíð staðarins og verður opin á eftirfarandi tímum:

Fim. 18. júní 20-22
Fös. 19. júní 13-18
Lau. 20. júní 11-19
Sun. 21. júní 11-15

Fleiri fréttir