Verslunarmannafélagið gefur góða gjöf
Miðvikudaginn 17. desember komu fulltrúar Verslunarmannafélags Skagfirðinga í heimsókn á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki og afhentu formlega gjafir til HS. Gjafirnar eru aðstaða til þjálfunar ofþyngdarsjúklinga, loftdýna ásamt pumpu sem gerir langlegusjúklingum lífið bærilegra og Stedy-skutla sem er notuð til flutnings sjúkra milli staða.
Andvirði gjafanna er um ein milljón króna. Heilbrigðisstofnunin færir félagsmönnum verslunarmannafélagsins alúðarþakkir fyrir sýndan stuðning og hlýhug til stofnunarinnar. Fulltrúar stjórnar verslunarmannafélagsins voru Hjörtur Geirmundsson, Jónas Svavarsson og Sigríður G. Sigurðardóttir.