Vortónleikar Rökkurkórsins

Rökkurkórinn mun halda vortónleika sína í Árgarði á laugardaginn næsta 21. mars kl. 20:30. Á dagskránni verður söngur kórsins, einsöngur og tónlistaratriði.

 

Einsöng syngja þau Valborg Hjálmarsdóttir og Guðni Kristjánsson og Strengjasveit Tónlistarskóla Skagafjarðar undir stjórn Kristínar Höllu Bergsdóttur spilar nokkur lög í hléi. Undirleikur er í höndum Thomasar Higgerson og Kristínar Höllu Bergsdóttir sem leikur á fiðlu. Stjórnandi kórsins er Sveinn Sigurbjörnsson.

 

Boðið verður upp á veislukaffi að hætti Rökkurkórsins og er miðaverð aðeins kr 2500. Frítt fyrir 14 ára og yngri

Fleiri fréttir