Brúðuleikhús er hreint alls ekki bara fyrir börn :: Alþjóðlega brúðulistahátíðin á Hvammstanga

Greta Clough – listrænn stjórnandi Handbendis brúðuleikhúss.
Greta Clough – listrænn stjórnandi Handbendis brúðuleikhúss.

Um næstu helgi fer fram alþjóðlega brúðulistahátíðin HIP Fest (Hvammstangi International Puppetry Festival). Er þetta í þriðja sinn sem hátíðin fer fram en hún hefst föstudaginn 7. október og stendur fram á sunnudag 9. október. Mikilvægt að mynda góð tengsl við þessa erlendu listamenn upp á framtíðar samvinnu, segir Greta Clough.

Hátíðin nýtur sívaxandi vinsælda, enda afbragðskostur að njóta menningarlegs helgarfrís með fjölskyldu og vinum í rétt rúmlega tveggja tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík, segir Greta Clough – listrænn stjórnandi Handbendis brúðuleikhúss, núverandi Eyrarrósarhafa en hún ber hitann og þungann af skipulagi hátíðarinnar og móttöku þeirra erlendu listamanna sem til landsins koma sérstaklega til að sýna á Hvammstanga. Aðspurð segir hún aðdráttarafl Íslands vera afar hjálplegt við að bóka listamennina, enda eru á hátíðinni listamenn í allra fremsta flokki á heimsvísu sem alla jafnan koma ekki á jafn litlar hátíðar og þessa, en þiggja boðið og nýta tækifærið til að kynnast landi og þjóð í leiðinni.

Meðal sýninga á hátíðinni má nefna Pappírsleikhús en sú sýning kemur frá Spáni og er sprellfyndin sirkussýning með blöðrum, pappír og viftu fyrir alla fjölskylduna. Frá Bretlandi kemur sýningin Leirtími, en það er þátttökuverk fyrir yngstu áhorfendurna, stútfullt af breskum húmor eins og við þekkjum hann bestan – en börnin fá að stjórna söguþræði verksins og ákveða hvaða persónur verða búnar til úr leirnum, í lokin fá svo börnin að leira eins og þeim lystir – kannski betra að vera ekki í allra fínustu fötunum á þessari sýningu! Fyrir fullorðna er það svo meistaraverkið Snara frá Grikklandi sem stendur upp úr, verk sem sýnir það og sannar að brúðuleikhús er hreint alls ekki bara fyrir börn!

Allur bærinn er hátíðin

Feykir sendi Gretu nokkrar spurningar og bað hana í upphafi að rifja upp hvað væri eftirminnilegast í ferlinu öllu þar sem nú væri kominn nokkur reynsla á alþjóðlegar brúðusýningar á Hvammstanga.

-Það sem er eftirminnilegast er hvað andinn í bænum verður skemmtilegur! Heimamenn á spjalli við erlenda listamenn, fólk á labbi út um allan bæ að spá og spekúlera, ólíkt fólk að hittast og kynnast. Erlenda listafólkið verður hugfangið af litla bænum okkar, langar að vera lengur, koma aftur, eignast kunningja og vini. Þetta eru forréttindin við það að skapa list úti á landi og skipuleggja hátíðar úti á landi. Í borg hverfur svona lítil hátíð bara inn í ys og þys daglegs lífs. En hjá okkur er hátíðin alls staðar, allur bærinn er hátíðin. Það gerir andrúmsloftið svo einstakt og skemmtilegt. Enda er ég þeirrar skoðunar að skapandi greinar séu framtíð landsbyggðarinnar, og landsbyggðin sé framtíð skapandi greina.

Er HIP sýningin í ár að einhverju leyti frábrugðin fyrri hátíðum?
-Í ár eru færri sýningar en fleiri vinnusmiðjur og meira lagt upp úr tengslamyndun og slíku – það er mikilvægt að mynda góð tengsl við þessa erlendu listamenn upp á framtíðar samvinnu. Eins er ég hluti af netverki hátíðaskipuleggjenda á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum og hópur þessa fólks, sem eru fyrst og fremst skipuleggjendur hátíða en ekki listamenn sjálf, er að koma á hátíðina og fylgjast með okkar starfi. Ég funda svo með þessum hópi og læri af þeim, og þau af mér. Ég hef sjálf farið að heimsækja hátíðar erlendis og fer á fleiri í framhaldinu. Þetta er afar skemmtilegt og verðmætt tækifæri til að halda áfram að þróast og vaxa í starfi sem skipuleggjandi hátíða.

Þið segið að aðdráttarafl Íslands vera afar hjálplegt við að bóka listamennina. Eruð þið með einhver skemmtileg dæmi?
-Kannski ekki beint skemmtileg dæmi – en það hrúgast inn hjá okkur umsóknir allan ársins hring! Fólk er sífellt að biðja um að fá að koma, þannig að hróður hátíðarinnar hefur borist víða. En aðdráttarafl Íslands er vissulega hjálplegt, því það er ekki vegna þess að við séum að borga svona svakalega vel sem við fáum svona margar umsóknir. Ég sé líka að flestir listamennirnir fara í ferðalag um landið ýmist fyrir eða eftir hátíðina – og miðað við verðlag í landinu þá er ég handviss um að öll sýningarlaunin þeirra verða eftir hjá ferðaþjónum á Íslandi!

Er Handbendi komið með plön að öðrum sýningum?
-Á HIP erum við að sýna Heimferð sem við frumsýndum í sumar sem hluta af Listahátíð í Reykjavík og því að Handbendi er Eyrarrósarhafinn 2021-2023. Hvaða sýningar við vinnum á vetri komanda fer mikið eftir því hver uppskera okkar úr opinberum sjóðum verður, þannig að það er ekki tímabært að tala mikið um þau áform. En við erum alltaf með plön fyrir næstu sýningu, og þá þarnæstu líka! Framleiðsla nokkurra nýrra sýninga hefur þurft aðeins að hinkra undanfarið árið því að við höfum verið að leggja mikla vinnu – og mikið eigið fé – í að koma okkur upp eigin húsnæði. Húsnæðið heitir Stúdíó Handbendi og þar verður lítið leik- og tónleikahús, þar verða bíósýningar, námskeið og listviðburðir allskonar. Þar munum við reka listamannadvöl og vinna að eigin verkefnum. Húsnæðið verður einnig hægt að fá leigt fyrir einkasamkvæmi, fundi og veislur. Við munum einmitt nota það húsnæði á HIP Fest, svo fólk fær nú tækifæri til að berja húsnæðið augum, vonandi verðum við búin að skrúfa síðustu skrúfuna áður en hátíðin hefst!

Í lokin vill Greta koma þökkum til íbúa Norðurlands vestra fyrir stuðninginn og aðsóknina!
-Án ykkar væri engin hátíð og það er svo gaman að sjá fólk koma víða að úr landshlutanum á hátíðina. Það eru enn miðar lausir inni á tix – en þeir fara hratt, svo endilega ekki draga það að bóka fram á síðustu stundu.
Svo viljum við endilega þakka styrktar- og samstarfsaðilum okkar kærlega fyrir! Sóknaráætlun Norðurlands vestra, Húnaþing vestra, brúðulistasamtökin UNIMA, Húnaklúbburinn, Sjávarborg, Menningarfélag Húnaþings vestra, Hótel Laugarbakki, Eyrarrósin og Húnaþing vestra gera okkur kleift að halda þessa hátíð.

Dagskrá hátíðarinnar má skoða á heimasíðu hennar thehipfest.com.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir