Altaristaflan í Sjávarborgarkirkju fór á hliðina

Taflan eins og hún birtist í Feyki. Taflan síðan teinrétt neðst í fréttinni. MYND: SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
Taflan eins og hún birtist í Feyki. Taflan síðan teinrétt neðst í fréttinni. MYND: SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR

Einhver draugagangur gerði vart við sig rétt áður en Feykir fór í prentun á mánudaginn því ljósmynd af altaristöflu í Sjávarborgarkirkju prentaðist á hlið. Myndin var teinrétt og til mikillar fyrirmyndar í próförk en einhverjir voru hissa þegar blaðið fór að berast áskrifendum í dag.

Beðist er velvirðingar á þessu en það er Feykisfólki hulin ráðgáta hvernig þetta gerðist þó væntanlega sé ofur eðlileg skýring á þessu.

Sigríður Sigurðardóttir sagnfræðingur, sem svaraði að þessu sinni spurningu Feykis um hvaða altaristafla henni þætti merkilegust í kirkjum Skagafjarðar, velti því fyrir sér í léttu spjalli við Feyki hvort hér væri um kraftaverk að ræða.

Það verður að teljast ólíklegt – sennilega bara gömlu góðu óútskýrðu mistökin.

Fleiri fréttir