Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra auglýsir eftir styrkumsóknum

Frá Hvammstanga. Mynd:FE
Frá Hvammstanga. Mynd:FE

Húnaþing vestra auglýsir á vef sínum eftir umsóknum um styrki úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra. Markmið sjóðsins er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu.  Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu. 

Áherslur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu og rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi í Húnaþingi vestra. Styrkir sem veittir eru úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir eða styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.

Væntanlegum umsækjendum og öðrum áhugasömum er bent á úthlutunarreglurumsóknareyðublað og lokaskýrslu. á heimasíðu sveitarfélagsins.

Sveitarstjóri Húnaþings vestra, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir,veitir nánari upplýsingar í síma 455-2400 eða á netfanginu rjona@hunathing.is. Umsóknir skulu berast til sveitarstjóra Húnaþings vestra á sérstöku umsóknareyðublaði eigi síðar en 29. maí næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir