Skipulagslýsing fyrir lóð undir tengivirki Landsnets í Hrútafirði

Mynd:hunathing.is
Mynd:hunathing.is

Sveitarstjórn Húnaþings vestra  samþykkti á fundi sínum þann 14. apríl s.l. að leita umsagnar á skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag og breytingu á aðalskipulagi fyrir lóð undir tengivirki Landsnets í Hrútafirði. Skipulagslýsingin er unnin hjá Stoð ehf verkfræðistofu og er sett fram í greinargerð útg. 1.1 dags. 27.03.2020. Skipulagslýsingin felur í sér að afleggja núverandi tengivirki Landsnets, með nýju og fyrirferðaminna yfirbyggðu tengivirki þess í stað. 

Í inngangi að skipulagslýsingu segir m.a.: „Í desember 2019, janúar og febrúar 2020 var veðurfar óvenju slæmt á Íslandi. Samgöngur lágu niðri og mannvirki urðu fyrir tjóni. Jörðin Hrútatunga í Hrútafirði var þar engin undantekning og né heldur tengivirkið sem stendur á lóð nyrst á landi jarðarinnar. Á þessum þremur mánuðum leysti tengivirkið nokkrum sinnum út með þeim afleiðingum að heimili á stóru svæði voru án rafmagns, fyrirtæki gátu ekki starfað og stofnanir ekki sinnt sínu hlutverki. Í ljósi þessa atburða hefur verið ákveðið að endurnýja núverandi útivirki með nýju innivirki.“ 

Lóðin er í aðalskipulagi skilgreind sem landbúnaðarsvæði og því kallar þessi breytta landnotkun á breytingu á aðalskipulagi þar sem landbúnaðarsvæði verður breytt í iðnaðarsvæði. 

Skipulagslýsingin verður til sýnis í Ráðhúsi Húnaþings vestra og á heimasíðu sveitarfélagsins.

Umsagnir um skipulagslýsinguna skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is  fyrir 17. maí n.k.

Sjá nánar á hunathing.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir