Það er Bangsaleikur í Síkinu í kvöld – látum gott af okkur leiða!
Sjötta umferðin í Bónus deild karla í körfubolta hefst í kvöld í Síkinu þar sem Stólarnir taka á móti liði ÍR. Leikurinn er leikinn snemma vikunnar þar sem Tindastólsmenn spila í ENBL-deildinni hér heima á fimmtudaginn. En það er ekki allt. Í kvöld er nefnilega Bangsaleikur þar sem áhorfendur eru hvattir til að kaupa bangsa í Síkinu – til styrktar Einstökum börnum – og kasta þeim síðan inn á völlinn þegar fyrsti þristur kvöldsins lítur dagsins ljós.
Við erum spenntir að endurtaka leikinn með Einstökum börnum,“ sagði Arnar Guðjónsson þjálfari þegar Feykir spurði hann út í framtakið en þetta er í annað sinn sem Stólarnir spila Bangsaleik. „Þetta heppnaðist mjög vel í fyrra. Það er æðislegt að félagið getur í sameiningu með samfélaginu látið gott af sér leiða. Það er eitthvað sem maður hefur séð strax hér hvað samfélagið er samheldið og duglegt að gefa af sér.“
Einstök börn mæta á svæðið kl. 18:00 og verða með ýmsan varning til sölu, meðal annars bangsana sem kastað verður inn á völlinn við fyrstu þriggja stiga körfu Tindastóls manna og leikmenn munu síðan færa Einstökum börnum á Norðurlandi.
Frítt er á leikinn fyrir þau sem kaupa bangsa á staðnum en þeir verða í tveimur stærðum og kosta 2.500 og 5.000 krónur. Þeim dýrari fylgir frítt fyrir 2.
Húsið opnar 18:00. Hamborgarar og Tindastólsvarningur á sínum stað.
Sjáumst í Síkinu!
