Að kveikja á eigin krafti – Nærandi sambönd og samskipti
6. nóvember kl. 17:00-19:00Hvað er að gerastVefnámskeið
6nóv
Farskólinn kynnir námskeiðið - Að kveikja á eigin krafti
Námskeiðið byggir á grunni lífsþjálfunar með það að markmiði að þátttakendur öðlist fleiri hagnýt verkfæri til að efla eigin sambönd og samskipti, hæfni sem byggist upp innan frá með meðvituðum hætti.
Að auka meðvitund um eigin ábyrgð í samskiptum og samböndum
Að rækta heilbrigð tengsl með skýrum mörkum, góðvild og mildi
Að efla trú sína til að skapa nærandi og stuðningsrík sambönd
*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.
„Ég verð að viðurkenna vanþekkingu mína á Evrópusambandinu sem hér er að verða bara æpandi greinilega. Vegna þess að ég kannast ekki við ummæli Evrópusambandsins eða framkvæmdastjórnarinnar varðandi það að íslenzk stjórnsýsla sé of lítil til þess að geta tekizt á við Evrópusambandsaðild,“ sagði Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í umræðum á Alþingi í vikunni um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um fyrirhugað þjóðaratkvæði um sambandið.
Formenn Verslunarmannafélags Skagafjarðar, Öldunnar og Samstöðu hafa undanfarið kannað möguleika á sameiningu þessara þriggja félaga. Búið er að ræða stöðu og getu sjóða félaganna og möguleika á að standa við skuldbindingar ef af sameiningu yrði. Engin atriði hafa komið upp sem eru líkleg til að standa í vegi fyrir sameiningu.
Knattspyrnusamband Ísland og Ungmennafélag Íslands hafa nú tekið höndum saman um að kynna göngufótbolta fyrir landsmönnum. Göngufótbolti er ört stækkandi íþróttagrein og hefur verið stundaður um allan heim í nokkur ár og er t.d. orðinn mjög vinsæll í Danmörku. Hann hefur verið stundaður hér á landi við góðar undirtektir og eru kostirnir við hann þeir að um afar einfalda íþrótt er að ræða, allir geta tekið þátt á sínum forsendum. Reglurnar eru einfaldar, það má ekki hlaupa, bara ganga. Spilað er á litlum velli og eina sem þarf eru tvö mörk og fótbolti.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Edda Borg Stefánsdóttir frá Sauðárkróki er nú búsett á Akureyri. Hún er uppalin á Króknum, fædd 1991. „Ég er dóttir Stebba Gauks, starfar sem töframaður í Loðskinn, kenndur við Gauksstaði á Skaga, og Ollu Dísar, dóttir Gígju og Árna heitinna á Hólmagrund.“ Röddin er aðal hljóðfæri Eddu en einnig spilar hún á píanó og gítar. „Mig langar að læra á kontrabassa og blásturshljóðfæri líka, það er alltaf hægt að bæta við sig!“ segir hún eldhress. Helsta afrekið í tónlistinni segir hún einfaldlega hafa verið drífa sig loksins til að semja og fara í söngnám. Ég tek grunnpróf í Tónlistarskóla Akureyrar núna í apríl. Annars var auðvitað mjög skemmtilegt að fá að vera Tarantúla með Arnari og Helga,“ segir Edda og vísar þar í lagið Tarantúlur með Úlfur Úlfur.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.