Aðventugleði á Hofsósi 2026
Nú er aftur komið að því að skapa góða aðventustemmningu á Hofsósi og blásum við því til Aðventugleði 2026. Höfðaborg opnar kl. 13 og verður þar markaður og Kvenfélag Hólahrepps verður með kaffisölu. Fjölbreytt söluvara og óvæntar uppákomur munu gleðja gesti. Þegar markaði lýkur kl. 17 verður hægt að fara í Hofsóskirkju og njóta kyrrðar í Prjónamessu sem hefst kl. 17.30 og Anna Hulda djákni leiðir.
Kaupfélagið verður með opið og einnig verður opið hús í Gró í frystihúsinu. Þar verður sýnd jólamynd og hægt að kaupa heitt súkkulaði, poppkorn og snakk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.