Kvöldopnun í Aðalgötunni

Ein gömul og góð úr Aðalgötunni – það verður kannski ekki alveg svona jólalegt í kvöld. MYND: ÓAB
Ein gömul og góð úr Aðalgötunni – það verður kannski ekki alveg svona jólalegt í kvöld. MYND: ÓAB

Í kvöld, fimmtudagskvöldið 26. nóvember, ætla fyrirtæki við Aðalgötuna og við Skagfirðingabrautina á Sauðárkróki að vera með kvöldopnun frá kl 20-22. Skemmtileg og afslöppuð jólastemmning og alls konar flott tilboð.

Á Facebook-síðu viðburðarins má finna eftirfarandi upplýsingar:

Hjá Ernu verður með jólakósý og huggulegheit - 25% afsláttur af öllu nema jólakössum.

Blómabúðin verður með 15% afslátt af öllum vörum og 25% afslátt af jólastjörnum.

Capello verður með 15-30% afslátt af vörum og Obba í Wanita verður einnig á staðnum með pop up verslun.

Kúnst verður með vörutilboð og léttar veitingar.

Kaffi Krókur verður með tilboð á Espresso Martini og Mojito og 15% afslátt af öllum smáréttum.

Stofan hár&verslun verður með opið frá 18-21. Sif Snyrtistofa verður með pop up. Tilboð, kynningar á nýjum vörum og kaupaukar. Léttar veitingar og drykkir.

Game of nails verður með jólakósý og tilboð á gjafaöskjum frá LovaIceland.

Grand-inn verður kominn með jólabjórinn og svo er Guinness kominn á micro-draught dælu.

Djákninn verður með 10-15% afslátt

Sálarrannsóknarfélagið verður með opið hús. Boðið verður upp á jólaglögg og piparkökur. Eigum saman notalega stund í aðdraganda jólanna með tarotspilalestri og heilun. Allir velkomnir.

Táin strata verður með 20% afslátt af fatnað og ilmum.

Kirkjuhvoll - Gisting verður með opið hús, þar er Litla línbúðin með valdar vörur frá Lín Design til kaups.

Hlökkum til að taka á móti ykkur í jólaskapi!

Fleiri fréttir