18. febrúar kl. 17:00-18:00Hvað er að gerastVefnámskeið
18feb
Í þessum fyrirlestri er farið yfir mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu. Meðal annars er fjallað um eftirfarandi atriði:
Hversu mikið þurfum við að sofa og hvaða áhrif hefur of lítill svefn?
Uppbygging svefns, svefnstig og hlutverk þeirra.
Hvað hefur áhrif á svefn og svefngæði?
Hvernig virkar líkamsklukkan? Hvenær er hugræn færni eins og athygli og árvekni í hámarki og hvenær er vöðvastyrkur í hámarki? Hvernær er t.d. best að sinna hugrænt krefjandi verkefnum í vinnunni?
Áhrif svefns og svefnleysis á andlega og líkamlega heilsu.
Hvaða úrræði er til við svefnleysi og hvert leita ég?
Hvað getum við sjálf gert til að tryggja góðan nætursvefn? Góð svefnráð rædd.
Menningarhús á Sauðárkróki, miðstöð menningar og sviðslista, hefur verið hluti af framtíðarsýn okkar í tvo áratugi. Með samningi sem undirritaður var vorið 2023 á milli ríkisins og sveitarfélagsins er bygging Menningarhúss komin í fastan farveg og áætluð verklok í lok árs 2027.
Hinn 9. desember 2025 voru liðin 120 ár frá fæðingu Guðmundar L. Friðfinnssonar, skáldbónda á Egilsá. Hann var fæddur á Egilsá 9. desember 1905, og voru foreldrar hans Friðfinnur Jóhannsson og Kristín Guðmundsdóttir. Guðmundur var búsettur á Egilsá alla ævi og stundaði þar búskap samhliða ritstörfum, sem hann sinnti jafnan í hjáverkum.
Út er komin bókin Í framlínu – lögreglumenn segja frá og er hún þegar komin í helstu bókaverslanir. Höfundur er Júlíus Ó. Einarsson þjóðfræðingur, sem jafnframt er fyrrverandi lögreglumaður. Í bókinni lýsa tugir lögreglumanna starfi sínu, einstökum verkefnum og upplifunum á meira en 250 blaðsíðum. Einnig eru þar hugleiðingar um eðli lögreglustarfins og áhrif þess á þá sem því sinna og þeirra nánustu.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Tón-lystar-spekingurinn í þetta skiptið er Haukur Freyr Reynisson, oft kenndur við Bæ á Höfðaströnd. Haukur er fæddur á fyrsta ári áttunda áratugarins, fyrstu árin alinn upp í Hveragerði en síðan í skagfirsku sælunni. Haukur segist spila á svuntuþeysi (gamalt orð yfir hljóðgerfil eða hljómborð) og hans helstu afrek í tónlistinni eru að vinna ekki hljómsveitakeppni í Húnaveri, komast ekki í úrslit í músíktilraunum en spila svo á dansiböllum um allt land.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.