Flóamarkaður, kaffisala og kökubasar

19. apríl kl. 14:00-17:00 Hvað er að gerast Félagsheimilið Melsgil
19 apr

Flóamarkaður í Melsgili
Hinn árlegi flóamarkaður, kökubasar og kaffisala verður í félagsheimilinu Melsgili sunnudaginn 19. apríl nk. kl. 14:00 -17:00 fyrir gesti og gangandi.
Ýmislegt gamalt og nýtt verður til sölu m.a. skrautmunir, leirtau, fatnaður, jóladót, kökur og margt fleira góðgæti.
Rjómapönnukökurnar verða á sínum stað.
Allir velkomnir
Kvenfélag Staðarhrepps

19. apríl það öllum skal boða,
úrval á staðnum og vissara að hlaupa.
Í Melsgil á sunnudag mættu að skoða,
margt er til sölu og gaman að kaupa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.