Fræðslufyrirlestur um litaerfðir hrossa í Sögusetri íslenska hestsins
Í tilefni sumaropnunar Söguseturs íslenska hestsins býður setrið upp á fræðslufyrirlestur um litaerfðir hrossa sunnudaginn 7. júní klukkan 16:00 með Dr. Monika Reißmann.
Fyrirlesturinn hentar jafnt hestafólki sem áhugasömum gestum án sérþekkingar á erfðafræði. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Spurningar og umræður eru velkomnar á íslensku, ensku og þýsku.
Dr. Monika Reißmann starfaði um árabil við Humboldt-Universität zu Berlin þar sem hún veitti lífefna- og sameindalíffræðideild háskálans forstöðu. Hún lét af störfum sem forstöðumaður í lok síðasta árs, en heldur áfram að sinna ýmsum verkefnum tengdum rannsóknum og fræðslu við háskólann.
Rannsóknir hennar hafa meðal annars beinst að uppruna hrossa, erfðafræðilegri fjölbreytni mismunandi hrossakynja, litaerfðum og erfðafræðilegum þáttum sem hafa áhrif á eiginleika og ræktunarmarkmið hrossa. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum innlendum og alþjóðlegum rannsóknaverkefnum og birt fjölda vísindagreina á sviði hrossaerfðafræði.
Dr. Reißmann nýtur mikillar virðingar innan alþjóðlegs samfélags þeirra sem starfa við hrossarækt og rannsóknir. Í fyrirlestrum sínum tengir hún saman nýjustu vísindalegu þekkingu og hagnýta reynslu og miðlar flóknum erfðafræðilegum viðfangsefnum á skýran og aðgengilegan hátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.