Hrekkjavaka í Glaumbæ
Það er eitthvað skuggalegt í vændum í Skagafirði laugardaginn 31. október! ?✨
Kíkið í grikk og gott á Sauðárkróki kl. 17-19 og svo í Glaumbæ kl. 19–21 til að upplifa hrekkjavökustemningu og heyra íslenskar draugasögur!
?️ Sýningarnar í gamla bænum taka á sig skuggalega mynd og Miklabæjar-Sólveig og fleiri fara á stjá…
? Í baðstofunni verða draugasögur og fróðleikur um gömul hindurvitni og uppruna hrekkjavökunnar
? Í Áshúsi verður vinnustofa fyrir yngri kynslóðina þar sem hægt verður að skera út grasker og rófur
☕ Einnig verður mögulegt að kaupa léttar veitingar.
?? Börn 12 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum og það gæti verið betra fyrir viðkvæmar sálir á öllum aldri að hafa fylgdarfólk sér til halds og trausts.
?️ Ókeypis aðgangur fyrir börn undir 18 ára og fullorðna í búningum!
✨ Munið eftir ársmiðunum!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.