29. nóvember kl. 14:00-16:00Hvað er að gerastHólar
29nóv
Við fræðumst um ríka sögu Hólastaðar með Þuríði Helgu. Þar var stofnaður skóli 1105 og þar er ein elsta steinkirkja landsins. Við skoðum dómkirkjuna, torfbæinn og fleira.
We will learn about the history of Hólar with Þuríður Helga. A school was founded there in 1105, and it is home to one of the country’s oldest stone churches. We will tour the cathedral, the turf house, and more.
Hvar og hvenær:
nóvember klukkan 14:00 á Hólum. Við hittumst við kirkjuna og förum í skoðunarferð
Markmið viðburðanna er að byggja upp sjálfstraust og þekkingu á þjónustu á Norðurlandi vestra, auka sjálfstraust í tali og félagslega samveru.
Samtal og samfélag í daglegu lífi er verkefni Farskólans sem styrkt er af Mennta- og barnamálaráðuneytinu.
The aim of this event is to build confidence, introduce the services available in Northwest Iceland, increase fluency in spoken Icelandic, and enjoy social togetherness.
“Conversation and Community in Daily Life” is a project by Farskólinn, supported by the Ministry of Education and Children.
Nýjar háupplausnar loftmyndir voru teknar af öllum þéttbýlisstöðum á Norðurlandi vestra síðastliðið sumar. Teknar voru meðal annars myndir af Blönduósi, Sauðárkróki, Skagaströnd og Hvammstanga svo nokkrir staðir séu nefndir. Myndirnar hafa nú verið birtar á kortasjám sveitarfélaganna sem hægt er að nálgast á heimasíðum þeirra og á www.map.is
Árið 1985 ákváðu Sameinuðu þjóðirnar að 5. desember yrði helgaður sjálfboðaliðum og síðan þá hefur dagurinn verið haldinn hátíðlegur víða um heim ár hvert. Íþróttahreyfingin á Íslandi lætur sitt ekki eftir liggja og halda ÍSÍ og UMFÍ nú upp á daginn þriðja árið í röð. Við hvetjum íþróttahéruð og sérsambönd til að taka þátt með því að tilnefna sjálfboðaliða úr sínum röðum og lyfta þannig upp því góða fólki sem sinnir ómetanlegu starfi innan hreyfingarinnar. Svæðisstöðvar íþróttahéraða verða ykkur til halds og trausts við verkefnið og miðlun þess á hverju svæði. Í tilefni dagsins hlýtur svo einn sjálfboðaliði á hverju landsvæði viðurkenningu.
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar býður íbúa velkomna á opinn íbúafund um stöðu sveitarfélagsins, atvinnuuppbyggingu og önnur málefni sem varða samfélagið.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Að þessu sinni er það Króksarinn Árni Gunnarsson, kvikmyndagerðamaður og fyrrverandi ritstjóri Feykis (með miklu meiru), sem svarar Tón-lystinni. Áhugasvið Árna er ansi breytt og meðal þess sem hann hefur föndrað við í gegnum árin er að búa til tónlist. Árni er fæddur árið 1967, ólst upp í Flatatungu á Kjálka, sonur heiðurshjónanna Gunnars heitins Oddssonar frá Flatatungu og Helgu Árnadóttur frá Akranesi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.