Góðir gestir væntanlegir á rithöfundakvöld Héraðsbókasafns Skagfirðinga

Það var margt um manninn á rithöfundakvöldi fyrir síðustu jól. Á myndinn neðar má sjá höfundana sem heimsóttu safnið á síðasta rithöfundakvöldi. MYNDIR AF VEF SAFNSINS
Það var margt um manninn á rithöfundakvöldi fyrir síðustu jól. Á myndinn neðar má sjá höfundana sem heimsóttu safnið á síðasta rithöfundakvöldi. MYNDIR AF VEF SAFNSINS

Á fimmtudaginn í næstu viku, 19. nóvember, verður árlegt rithöfundakvöld haldið hjá Héraðsbókasafni Skagfirðinga. Rithöfundakvöldið er jafnan einn af stærstu viðburðum ársins hjá bókasafninu og verður engin undantekning frá því í ár. Von er á fimm valinkunnum höfundum sem munu lesa upp og kynna nýútkomnar bækur sínar.

Það eru ógrynni bóka að koma út fyrir þessi jólin sem hafa skagfirskar tengingar. Var ekki höfuðverkur að velja úr rithöfundum til að mæta á rithöfundakvöldið? „Jú, það er alltaf erfitt að velja úr. Margt sem þarf að hafa í huga, ekki síst fjölbreytni bókanna. Það hefði auðveldlega verið hægt að halda nokkur svona kvöld,“ sagði Kristín S. Einarsdóttir forstöðumaður Héraðsbókasafns Skagfirðinga.

Eftirtaldir höfundar mæta á safnið og kynna bækur sínar á rithöfundakvöldinu:

Tengdadóttir Skagafjarðar, Gerður Kristný, mun kynna bókina Míkadó. Gerður Kristný er þekktust fyrir ljóðabækur sínar en að þessu sinni er hún með skáldsögu. Þetta er saga frá Reykjavík níunda áratugarins. Með ísmeygilegri kímni og hnífskörpu innsæi er dregin upp lýsing á heimi sem stundum virðist kæfandi en stundum barmafullur af möguleikum. Bókin hefur vakið athygli og hlotið góða dóma.

Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur er með bókina Dauðadæmd, sem byggir á gömlu sakamáli í Skagafirði. Sumarið 1769 var ung vinnukona á bænum Gerði í Skagafirði ákærð fyrir að hafa alið barn á laun og drepið það. Hún hét Oddný Jónsdóttir og var 22 ára gömul. Nokkru seinna var hún dæmd til dauða á héraðsþingi í Skagafirði. Í bókinni fjallar Guðný um ævi Oddnýjar, tilurð dulsmálsins og glímu kvenna við réttarkerfið á átjándu öld.

Kristján Eiríksson er með viðamikið rit, Drangeyjarsögur, þar sem eyjunni eru gerð skil í máli og myndum. Sagt er frá sigmönnum í Drangeyjarbjargi, djarffærni í klettum, slysförum á sjó og landi og mannlífinu í þessari gjöfulu veiðistöð. Kristján er með kunnugri mönnum á þessum slóðum, enda fæddur og uppalin á Reykjaströndinni.

Benný Sif Ísleifsdóttir er með skáldsöguna Vetrarþrestir. Bókin segir frá Hinrik, ættstórum en vinafáum ungum manni úr Reykjavík, sem hefur hvorki enst í námi né starfi, en reynir fyrir sér í hótelrekstri austur á fjörðum. Hann ræður til sín starfsfólk með það í huga að eignast bæði vin og kærustu – það sem hann helst óskar sér – og fálmar þannig eftir hamingjunni. Benný Sif hefur áður heimsótt safnið og var gerður góður rómur að kynningu hennar og greinilegt að bækurnar njóta mikilla vinsælda.

Bóksalinn kunni, Bjarni Harðarson á Selfossi, kynnir bókina Aleinn og mállaus. Þar er á ferðinni safn ferðapistla höfundar frá áratuga einmanalegu rangli um jarðarkringluna. Hann tekur andköf og predikar en brýtur sjálfur allar reglur rétthugsandi manna um velsæmi, málfar og hugtök. Í bókinni er að finna aragrúa ýkjukenndra sagna sem hvergi eiga heima.

Rithöfundakvöldið verður í bókasafninu, á efri hæð Safnahúss Skagfirðinga við Faxatorg. Í hléi verður boðið upp á konfekt og jólate. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.

Feykir þakkar Kristínu fyrir samantektina og hvetur bókaunnendur til að fjölmenna á rithöfundakvöldið.

Fleiri fréttir