28. nóvember kl. 19:00Hvað er að gerastharbour restaurant & bar - Hafnarlóð 7 - 545 Skagaströnd
28nóv
Jólahlaðborð á Harbour ?
Komdu þér og þínum í sannkallað jólaskap hjá okkur á Harbour 27. og 28. nóvember.
Glæsilegt jólahlaðborð, góður matur og notaleg jólastemning bíða ykkar. ✨ Tilvalið fyrir vinahópa, fjölskyldur og fyrirtæki sem vilja eiga skemmtilegt og notalegt kvöld saman á aðventunni.
Vakin er athygli á stofnfundi samtakanna Björgum Kristnesspítala, sem haldinn verður sunnudaginn 1. nóvember kl. 17 á Hælinu, setri um sögu berklanna á Kristnesi. Tilefni stofnunar samtakanna er fyrirhuguð lok endurhæfingar á Kristnesi og vaxandi áhyggjur af framtíð þessarar mikilvægu heilbrigðisþjónustu.
Hefur þú innsýn í íslenska skötuhefð og reynslu af því að kæsa skötu? Nú leitum við að framleiðendum um allt land sem verka skötu. Ef þú þekkir vel hvernig kæsing fer fram og/eða hvernig verklagið hefur breyst í tímans rás máttu endilega heyra í okkur! Sömuleiðis ef þú veist hverjir stunda slíka framleiðslu.
Landsamband eldri borgara (LEB) hefur á síðustu fimm árum náð mikilvægum árangri í réttinda- og kjarabaráttu eldra fólks. Það er ástæða til að fagna þeim sigrum sem unnist hafa. Þeir eru ekki sjálfsagðir og komu ekki af sjálfu sér. Þeir eru afrakstur þrotlausrar baráttu, samstöðu og skýrrar kröfugerðar gagnvart stjórnvöldum. Núverandi stjórnvöld hafa sýnt okkur velvilja og það ber að þakka.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Það ættu nú flestallir sem komnir eru til vits og ára hér fyrir norðan að tengja við tónlistarmanninn Eika Hilmis, fullu nafni Eirík Hilmisson, en hann gerði hér áður víðreyst um landið með hljómsveitinni Týról og að sjálfsögðu Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar. Eiki var magnaður með gítarinn en segir sjálfur að hans undurfagra söngrödd hafi alltaf verið sinn helsti styrkur í tónlistinni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.