Einar Kára og Sigurður Hansen kynna nýja bók í Kakalaskála

Það verður að öllum líkindum góð stemning í Kakalaskála á laugardaginn. SKJÁSKOT AF AUGLÝSINGU
Það verður að öllum líkindum góð stemning í Kakalaskála á laugardaginn. SKJÁSKOT AF AUGLÝSINGU

Feyki barst óvænt á síðustu stundu auglýsing í síðasta tölublað þar sem tilkynnt var um fögnuð í Kakalaskála í Blönduhlíð í tilefni af útkomu bókar Einars Kárasonar um húsráðanda, Sigurð Hansen. Það verða örugglega margir sem hlakka til þess að orna sér með þá sögumenn í kjöltunni, enda segir í auglýsingunni: Bráðskemmtileg bók í skagfirskum gleðianda! Feykir spurði Einar út í bókina, Sigga og útgáfufögnuðinn sem verður í Kakalaskála kl. 17 á laugardaginn.

Hvað geturðu sagt okkur um bókina nýju, Sigurður Hansen í Kakalaskála – Nokkur ævintýri úr lífi. Hvernig bók er þetta? „Þessi bók er hugsuð sem svona portrett af merkilegum manni sem hefur lifað afar fjölbreyttu og ævintýralega lífi, og kann að segja frá því. Portrett semsé, ekki stórt olíuskilírí eins og gerð eru af keisurum og þannig leiðinlegu fólki.“

Hvernig kom það til að þú réðst í að taka saman bók um Sigurð Hansen? „Fleiri en ég sem kynnst hafa Sigga og heyrt hann segja frá hafa hugsað að gaman væri að geta miðlað sýnishorni af slíku til annarra sem ekki hafa verið svo heppnir að fá að vera í samvistum við meistarann. Það var svo Ingimar Jónsson frá Flugumýri, forstjóri Pennans, sem ákvað að ýta verkefninu úr vör og fékk til fulltingis Pétur Má útgefanda og mig sem skrásetjara.“

Kom eitthvað sérstaklega á óvart við vinnuna við bókina? „Nei, satt best að segja kom mér fátt á óvart beinlínis, nema að ég hafði ekki fyrr heyrt um ýmislegt sem hann hefur tekið að sér í lífinu. Hinsvegar vissi ég samt að það væri æði fjölbreytilegt og að úr því gætu orðið safaríkar sögur.“

Farið í útihús til gegninga

Þið Siggi eruð búnir að bralla ýmislegt saman síðustu árin. Hefur þessi vinátta komið þér á óvart á einhvern hátt? „Við Sigurður Hansen kynntumst sem verandi Sturlungumenn báðir tveir. Ég hef fylgst með honum frá því hann var að hefja vinnu við útilistaverkið um Haugsnesbardaga, standsetningu Kakalaskálans þar sem ég hef alloft fengið að troða upp og taka þátt í dagskrám. Að auki hef ég oft fengið að njóta gistivináttu þeirra Maríu og þeirra glaðværðar og elskusemi. Stundum höfum við verið að brasa eitthvað saman, og þegar komið er fram yfir miðjan dag hefur Siggi gjarnan spurt hvort „ekki sé rétt að fara í útihús til gegninga?“ Og þar hefur jafnvel verið lumað á einhverju sem svo reynist hressandi að skvetta í sig.“

Hvað ætlið þið að gera í Kakalaskála á laugardag til að fagna útgáfu bókarinnar? „Ég verð þar bara sem aðkomumaður að sunnan, þau heimafólkið ráða fyrir dagskrám. Eflaust munum við segja frá bókinni, trúlega lesa upp einhvern bút. Og þekki ég Skagfirðinga rétt verða eflaust einhverjar veitingar, sagnamennska og gleði, og jafnvel brostið í söng,“ segir Einar Kára að lokum.

Sem fyrr segir verður útkomu bókarinnar fagnað í Kakalaskála nú á laugardaginn, teitið hefst kl. 17:00 og að sjálfsögðu eru allir velkomnir – léttar veitingar í boði.

Fleiri fréttir