Ákvörðun sem tekin er í myrkri eða óvissu er sjaldnast gæfurík. Þegar við erum stödd á krossgötum í lífinu, hvort sem það varðar fjármál heimilisins, menntun barna okkar eða rekstur fyrirtækja, reynum við ævinlega að afla okkur eins mikilla upplýsinga og mögulegt er. Enginn skrifar undir kaupsamning á fasteign án þess að skoða ástand hennar, og enginn skuldbindur sig til stórra verkefna eingöngu byggða á innsæi eða hálfsannleika. Við viljum vita, ekki halda.
Sunnudaginn 19. júlí voru haldnir Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu en skapast hefur hefð fyrir slíkum tónleikum á síðasta degi Húnavöku.
Það voru Höllustaðasystkinin þau Ólafur Freyr Birkisson, Hulda Margrét Birkisdóttir og Helgi Páll Gíslason, sem stigu á stokk og fluttu fjölbreytta dagskrá. Öll eru systkinin einstaklega söngelsk og hafa sungið við ýmis tækifæri frá unglingsaldri.
Bann við innflutningi lifandi búfjár er aðeins einn hluti þess kerfis sem byggt hefur verið upp hér á landi til verndar dýraheilbrigði. Hér er átt við heildstætt kerfi þar sem mörg stjórntæki vinna saman að því markmiði að koma í veg fyrir að hingað berist og breiðist út sjúkdómar sem íslenskt búfé hefur litla eða enga mótstöðu gegn eða krefjast kostnaðarsamra aðgerða, svo sem bólusetninga eða niðurskurðar, til að halda þeim í skefjum.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Að þessu sinni er það trommarinn og slagverksleikarinn geðþekki, Jóhann Daði Gíslason (2000), sem svarar Tón-lystinni. Jóhann er alinn upp í Drekahlíðinni á Króknum en segist núna vera hér og þar. Hann er sonur Gísla Sigurðssonar og Lydíu Óskar Jónasdóttur og því með fótbolta í æðunum og dró fram markaskóna síðasta sumar og dúndraði inn nokkrum mörkum af hægri kantinum fyrir lið Tindastóls. Spurður út í helstu afrekin á tónlistarsviðinu segir hann það vera að hafa gefið út lagið Dúddírarirey með félögum sínum í Danssveit Dósa og skipuleggja tónleikana Jólin heima– sem vill svo skemmtilega til að verða einmitt nú um helgina.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.