12. júlí kl. 20:00-21:00Hvað er að gerastGoðdalakirkja
12júl
Sunnudagskvöldið 12.júlí kl 20 verður kvöldmessa í Goðdalakirkju Séra Karl sér um athöfnina ásamt organista og kirkjukór Léttar veitingar í boði sóknarnefndar á eftir messu Hvetjum fólk til að fjölmenna og eiga notalega kvöldstund saman
Framundan er Unglingalandsmót á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Landsmótið er frábært tækifæri til að hittast og styðja við íþróttastarf Tindastóls. Ég hvet félagsmenn, foreldra, stuðningsmenn og velunnara til að skrá sig í sjálfboðaliðastarf fyrir sína deild. Hvert framlag skiptir máli og hjálpar okkur að skapa góða upplifun fyrir gesti og þátttakendur.
Þó að kosningarnar í ágúst fjalli eingöngu um hvort halda skuli áfram aðildarumsókn þá hverfist umræðan um Evrópusambandið gjarnan um efnahagsmuni, tolla, markaðsaðgang, vexti og verðbólgu. Það er sannarlega eðlilegt að þessi atriði séu skoðuð og metin þegar tekin er afstaða til mögulegrar aðildar Íslands að ES. En Evrópusambandið (ES) er miklu meira og flóknara fyrirbæri. Evrópusambandið er í raun einstakt samstarfsverkefni þjóða sem byggir ekki aðeins á efnahagslegri samvinnu heldur einnig á sameiginlegum gildum um lýðræði, mannréttindi, félagslegt réttlæti og vernd umhverfisins. Frá stofnun þess hefur sambandið þróast úr efnahagsbandalagi ( European Coal and Steel Community, ECSC stofnað 1951/1952) í víðtækt samfélag ríkja sem leitast við að tryggja íbúum sínum öryggi, velferð og jöfn tækifæri.
Það var heldur betur líf og fjör á Hlíðarendavelli dagana 29. júní til 4. júlí, þegar Meistaramót GSS var haldið. Það skiptist á skin, skúrir og vindar þessa viku svo vægt sé til orða tekið. Bleytan varð það mikil að allir ánamaðkar búsettir á nöfunum þurftu að flýja heimili sín og þökktu því flatir og brautir á vellinum og máttu kylfingar hafa sig alla við að týna þá frá púttlínum. En eins og oft áður, þá brast á þetta líka fínasta veður þegar hollinn trítluðu niður 18. holu á lokadegi og fjölmenni var mætt til að fylgjast með lokum móts. Líklegast má telja að ef Skagfirðingar vilja finna viku þar sem er nokkuð öruggt að verði fínasta veður yfir sumarið, þá er það oftast nær vikan eftir Meistaramót GSS!
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Það þarf ekki að kynna Geirmund Valtýsson fyrir neinum. Það kannast allir við sveiflukónginn skagfirska og sennilega langflestir lesendur Feykis sem hafa verið á balli með Hljómsveit Geirmundar, tjúttað, trallað og jafnvel tekið fyrsta vangadansinn undir tónum Geira og félaga. Það er að sjálfsögðu löngu kominn tími til að Geiri svari Tón-lystinni í Feyki og ekki þótti síðra að fá hann til að svara Jóla-Tón-lystinni. Og það er augljóst hverjir voru helstu áhrifavaldar Geira í tónlistinni. „Bítlarnir náttúrulega átu mann upp, Paul McCartney, eins og hann gerir ennþá reyndar,“ segir hann léttur...
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.