Hellings golf í sumar | Frá Golfklúbbi Skagafjarðar
Golfsumarið er heldur betur komið á fullt. Fyrir utan innanfélagsmótin hjá okkur í boði HardWok og Esju Gæðafæðis þá eru opnu mótin farin að rúlla af stað líka og eru nú tvö opin mót búin og Meistaramót næst á dagskrá sem er hápunkturinn í mótahaldi hjá GSS. Meistaramóts vikan er 29. júní til 4. júlí og má þá búast við fjölmenni á vellinum og skemmtilegri keppni og alveg þess virði að gera sér ferð á Hlíðarendavöll og fylgjast með lífinu þar.
Opna KS mótið í Texas Scramble fór fram 13. júní í ljómandi góðu veðri og vor alls 22 lið sem tóku þátt, eða 44 keppendur. Sigurvegarar mótsins voru Sigríður Elín Þórðardóttir og Andri Þór Árnason á -12. Kaupfélag Skagfirðinga veitti vegleg verðlaun fyrir fyrstu 5 sætin og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Opna Hlíðarkaups mótið fór svo fram 20. júní, í kannski ekki eins góðu veðri. Norðanáttin var ríkjandi og það var frekar svalt og blautt að margra mati. En allir 24 keppendur skiluðu sér 18 holurnar og þáðu kaffiveitingar á eftir til að ylja sér. Kept var í einu opnum flokk í punktakeppni og það var Árný Lilja sem sigraði með 35 punkta. Líkt og í KS mótinu voru veitt vegleg verðlaun fyrir 5 efstu sætin og svo einnig nándarverðlaun á par 3 brautunum. Við þökkum Hlíðarkaup og Ásgeiri kærlega fyrir stuðninginn og vonum að þótt að þetta hafi verið síðasta mótið undir stjórn Ásgeirs að við sjáum áfram Hlíðarkaups mót á vellinum hjá okkur á komandi árum.
Það er svo nóg framundan hjá okkur það sem eftir lifir af sumri og hlökkum við til að sjá sem flesta á vellinum.
Golfkveðja Mótanefnd GSS

Fleiri fréttir
-
Margt smátt | Sigurður Líndal Þórisson skrifar
Margt smátt gerir eitt stórt. Þetta lærðum við flest þegar við eignuðumst fyrsta sparibaukinn. Ríkisstjórnin hefur lært þessi einföldu sannindi líka, og beitir þeim af hörku gegn heimilum landsins.Hækkanirnar og skerðingarnar sem skella á fólki árið 2027 virðast smávægilegar hver fyrir sig. Í frumvarpinu fer kílómetragjaldið úr 6,95 krónum í 8,05 á hvern ekinn kílómetra, krónutölugjöldin hækka um 5,2% og barnabætur standa í stað þriðja árið í röð. Skattleysismörkin fá enga raunhækkun og vaxtabæturnar falla niður. Króna hér, nokkur þúsund þar. Klink og smáræði. En þetta tínist til.Meira -
Enn er barist fyrir lauginni
Feykir sagði frá því að Skagfirsku sundmeyjarnar sem stóðu fyrir undirskriftum til að mótmæla lokun endurhæfingarlaugarinnar, hafi sent frá sér listann sem taldi 1232 manns, til allra helstu ráðamanna með kröfu um að lokunin verði dregin til baka.Meira -
Umferðarsöryggisáætlun í endurskoðun
Húnabyggð vinnur nú að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið. Markmið áætlunarinnar er að móta aðgerðaráætlun sem stuðlar að auknu öryggi, fækkun slysa og betri lífsgæðum fyrir íbúa og aðra vegfarendur.Meira -
Vilhelm Jensen hefur hafið störf hjá SSNV
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 23.10.2026 kl. 09.33 oli@feykir.isVilhelm Ívarsson Jensen hefur verið ráðinn verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og efur hann þegar tekið til starfa. Hann hefur aðsetur á starfsstöð SSNV á Sauðárkróki og með ráðningu hans eru starfsmenn samtakanna nú sjö.Meira -
Lögreglan á Norðurlandi vestra – Vegna rjúpnaveiða
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 22.10.2026 kl. 15.20 hinrik@feykir.isHinar árlegu rjúpnaveiðar eru fram undan og veiðimenn bíða þess með tilhlökkun að komast til fjalla, njóta útiverunnar og takast á við þá áskorun sem rjúpnaveiðar fela í sér. Veiðitímabilið á Norðurlandi vestra er frá 23. október – 17. nóvember. Samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum þurfa veiðimenn að fara eftir þeim skilyrðum sem gilda um veiðar á villtum fuglum. Þeir sem stunda rjúpnaveiðar þurfa að hafa gilt veiðikort og bera það með sér á veiðum. Einnig þarf að hafa meðferðis skotvopnaskírteini.Meira
