Ég tilheyri þeirri kynslóð sem stendur frammi fyrir raunverulegu vali, að flytja burt eða að taka þátt í að byggja upp. Ég hef valið að byggja upp, hér í Skagafirði. Það geri ég af því að ég sé tækifærin sem felast í samfélagi sem er nógu stórt til að vera öflugt en nógu lítið til að hver rödd skipti máli. Skagafjörður hefur sterka ímynd, sögu, öflugt atvinnulíf og ríkulegt menningar- og íþróttastarf. En framtíðin mótast ekki af sjálfu sér. Hún krefst staðfestu og ábyrgðar. Ef við viljum að fleira ungt fólk taki þá ákvörðun að setjast hér að, stofna heimili og byggja upp lífsviðurværi, þurfum við að hafa skýra sýn og staðfestu í framkvæmd.
Nú eru um fjögur ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu og hófu þar með stríð sem fáir skilja eitthvað í. Tilgangurinn virðist einfaldlega hafa verið sá að gera Rússland stórkostlegt að nýju og Pútin og Trump kyrja því kannski sama sönginn þegar öllu er á botninn hvolft.
Sumarið er tíminn, orti Bubbi okkar Morthens og ég get lofað ykkur því að til sumarsins hugsa flestir eða allavega golfarar! Það er nefnilega þannig að á sumrin spretta upp gorkúlur á nöfunum (lesist golfkúlur), nánar tiltekið á Hlíðarendavelli (og þar í kring). Og ég get lofað ykkur því að það stelur hjörtum fullum af þrá með tvöföldum skollum, þrípúttum og týndum boltum. En það er bara eins og það er.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Sigfús Ólafur er maður nefndur og er Guðmundsson. Hann segist eiga mjög auðvelt með að læra á hljóðfæri, æfði lengi á trompet á yngri árum en hefur einnig lært á gítar og söng og það eru hans aðal hljóðfæri í dag. „Ég er einnig partýfær á píanó, bassa, trommur og þríhorn,“ segir Sigfús og glottir en aðspurður um helstu afrek sín á tónlistarsviðinu segir hann: „Ætli það sé ekki þegar að hljómsveit sem ég var í á yngri árum náði lagi inn á Svona er sumarið 2006. Einnig hef ég tekið þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna og svo náði ég í 35 manna úrslit í þriðju seríu af íslenska Idolinu.“ Ekki slæmt...
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.