Sveitarstjórnarmál snúast ekki fyrst og fremst um slagorð. Þau snúast um fólk. Þau snúast um ákvarðanir sem hafa áhrif á daglegt líf íbúa, framtíð fjölskyldna, rekstur sveitarfélagsins og þá tilfinningu hvort fólk trúi því að hér sé gott að búa, starfa og ala upp börn.
Tækifæri Húnabyggðar til frekari uppbyggingar ferðaþjónustu eru mikil en til að grípa þau í auknum mæli þarf aðgerðir. Í Húnabyggð hefur margt gott verið gert þegar kemur að ferðaþjónustu, má þar nefna Heimilisiðnaðarsafnið, uppbyggingu gamla bæjarins á Blönduósi og áfangastaða á borð við Kálfshamarsvík, Þrístapa og himnastigann upp á Skúlahól í Vatnsdal.
Það er laugardagsmorgun þegar þessi pistill er ritaður, einn af mínum uppáhaldstímum vikunnar, þegar ég get sest niður í rólegheitum með kaffibolla áður en dagurinn fer á fullt. Vinkonur dóttur minnar í næsta húsi voru rétt í þessu að banka til að fá...
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Ásgeir Trausti Einarsson (1992) er ungur tónlistarmaður sem kom fyrst fram á sjónarsviðið í sjónvarpsþættinum Hljómskálanum í vor. Þar söng hann lagið Sumargestur sem fangaði vorstemninguna og um leið huga þjóðarinnar. Ásgeir Trausti fylgdi vinsældum þess lags eftir með smáskífunni Leyndarmál sem náði gífurlegri hylli og kom honum endanlega á kortið sem einum efnilegasta tónlistarmanni landsins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.