Formenn Verslunarmannafélags Skagafjarðar, Öldunnar og Samstöðu hafa undanfarið kannað möguleika á sameiningu þessara þriggja félaga. Búið er að ræða stöðu og getu sjóða félaganna og möguleika á að standa við skuldbindingar ef af sameiningu yrði. Engin atriði hafa komið upp sem eru líkleg til að standa í vegi fyrir sameiningu.
Knattspyrnusamband Ísland og Ungmennafélag Íslands hafa nú tekið höndum saman um að kynna göngufótbolta fyrir landsmönnum. Göngufótbolti er ört stækkandi íþróttagrein og hefur verið stundaður um allan heim í nokkur ár og er t.d. orðinn mjög vinsæll í Danmörku. Hann hefur verið stundaður hér á landi við góðar undirtektir og eru kostirnir við hann þeir að um afar einfalda íþrótt er að ræða, allir geta tekið þátt á sínum forsendum. Reglurnar eru einfaldar, það má ekki hlaupa, bara ganga. Spilað er á litlum velli og eina sem þarf eru tvö mörk og fótbolti.
Kirkjuklukkan á Hólum, Líkaböng, hringdi af sjálfsdáðum í þrígang þegar lík Jóns Arasonar biskups og sona hans voru flutt norður frá Skálholti. Fyrst þegar líkfylgdin kom í Vatnsskarð, aftur þegar hún kom á Hrísháls, þaðan sem sést upp Hjaltadalinn heim til Hóla, og loks látlaust frá því komið var í túngarðinn þar til líkin höfðu verið borin inn í kirkjuna. Hringdi hún þá svo ákaflega og lengi að hún rifnaði.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Það er Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm sem svarar lipurlega Tón-lystinni að þessu sinni. Hún er alin upp í Mosfellsdal, dóttir Huldu Jónasar sem er frá Sauðárkróki og er dóttir Erlu Gígju og Ninna. Hún er söngkona en spilar einnig á þverflautu, piccolo flautu og gítar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.