Uppfært og betra bókasafn í Fjölbraut

Nemendur eru væntanlega kátir með bætta aðstöðu í bókasafni FNV. MYNDIR: SKJÁSKOT AF FB-SÍÐU FNV
Nemendur eru væntanlega kátir með bætta aðstöðu í bókasafni FNV. MYNDIR: SKJÁSKOT AF FB-SÍÐU FNV

Á Facebook-síðu FNV er sagt frá því að eftir miklar endurbætur opnaði bókasafn skólans á ný þann 20. nóvember eða síðasta föstudag. „Fyrsti hönnunarfundurinn fór fram í mars og síðan þá hefur mikið breyst. Búið er að mála allt safnið, skipta um gólfefni og endurnýja húsgögn,“ segir í tilkynningunni og ekki annað að sjá í myndbandi sem birt er á síðunni en að bókasafnið sé góður staður til að vera á.

Fram kemur að í nýju og endurbættu bókasafni er meðal annars að finna vinnuherbergi með sæti fyrir 17–18 manns, tölvuaðstöðu þar sem nemendur geta tengt eigin tölvur við skjái og sérstakt rými með góðri hljóðvist fyrir upptökur á hlaðvörpum og fleira.

„Við vitum að margir hafa beðið opnunarinnar með eftirvæntingu enda er bókasafnið mikilvægur staður í skólanum þar sem nemendur koma saman til að læra, vinna hópverkefni eða einfaldlega njóta kyrrðarinnar. Við erum ótrúlega ánægð með útkomuna og hlökkum til að sjá nemendur nýta sér þessa glæsilegu aðstöðu,“ segir í tilkynningunni og full ástæða til að óska nemendur og starfsfólki skólans til hamingju með uppfært og betra bókasafn.

Fleiri fréttir