Eru Króksarar spenntir fyrir Bæjarhátíð næsta sumar?
Það er blásið til kynningarfundar á Kaffi Krók í dag, mánudaginn 23. nóvember kl. 18:00, en þar er hugmynin að kanna hvort áhugi sé fyrir því að halda bæjarhátíð á Sauðárkróki sumarið 2027. Það er að sjálfsögðu mikil vinna sem liggur á bak við það að setja upp bæjarhátið og því er spurt; er samfélagið tilbúið að taka þátt?
Það eru að sjálfsögðu allir velkomnir sem hafa áhuga á að ræða málin.
Af og til hefur verið bryddað upp á sumarhátíðum á Sauðárkróki en þær hafa ekki verið langlífar. Á níunda áratug síðustu aldar var Sumar Sæla í það minnsta eitt sumar, Hafnardagur var haldinn nokkur skipti snemma á 21. öldinni, síðan tóku Lummudagar við og voru í það minnsta haldnir sex sinnum. Sumarsæla í Skagafirði var haldin sumarið 2010 en það var gert í kjölfar þess að Landsmót í Skagafirði var slegið af vegna hestasóttar. Lummudagar hafa ekki verið haldnir síðan Covid skall á.
Á Hofsósi var um árabil Jónsmessuhátíð en árið 2018 var þeirri gleði breytt í Hofsós heim og er til mikils sóma.
Allt í kringum Krókinn eru haldnar miklar sumarhátíðir sem standa yfir í marga daga. Nú er spurning hvort áhugi sé fyrir því að láta reyna á Bæjarhátíð á Sauðárkróki að nýju.
