Sameining sveitarfélaga ekki á dagskránni á Skagaströnd
Fjölmennur íbúafundur fór fram í Fellsborg á Skagaströnd þann 12. nóvember síðastliðinn en í upphafi fundar héldu Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, oddviti sveitarstjórnar, og Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri, stutta tölu. Í frétt á Húnahorninu segir að í framhaldinu hafi farið fram umræður í sal um málefni sveitarfélagsins og möguleika í atvinnuuppbyggingu á Skagaströnd.
Húnahornið vitnar í fréttinni í vef Skagastrandar en þar sagði að fundurinn væri gott nesti fyrir sveitarstjórnina í störfum sínum og stefnt sé að því að fundir þessum líkir verði haldnir reglulega á kjörtímabilinu.
„Á íbúafundinum var m.a. farið yfir stöðu sveitarfélagsins, helstu áskoranir og framtíðarsýn. Oddviti og sveitarstjóri lögðu áherslu á mikilvægi virks samtals við íbúa og að fundurinn markaði upphaf reglulegra íbúafunda. Unnið hafi verið að því að bæta upplýsingaflæði, meðal annars með ítarlegri fundargerðum og opnum viðtalstímum kjörinna fulltrúa.
Fram kom að íbúum hafi fækkað úr um 600 árið 2001 í um 450 í dag, þó þróunin hafi verið stöðug á síðustu árum. Stærstu verkefni sveitarfélagsins séu að fjölga íbúum, skapa fleiri atvinnutækifæri og stuðla að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Sveitarstjórn telur ekki tímabært að hefja vinnu við sameiningu sveitarfélaga þrátt fyrir umræðu um slíkt á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fjárhagsstaða sveitarfélagsins var kynnt og kom fram að skuldir eru hóflegar og skuldahlutfall vel innan lögbundinna marka. Unnið er að nýrri fjárfestingaáætlun sem gerir ráð fyrir framkvæmdum á næstu árum. Ferðaþjónusta var talin eitt helsta tækifæri til framtíðar.
Í umræðum íbúa var meðal annars fjallað um mögulega uppbyggingu baðlóns og hótels á Hólanesi, framtíð slippsins, stöðu grunnskólans, íslenskukennslu fyrir starfsfólk af erlendum uppruna, endurbætur á sundlaug og tækifæri tengd ferðaþjónustu og hafnaraðstöðu. Fundargestir voru hvattir til áframhaldandi þátttöku í mótun framtíðar Skagastrandar,“ segir í yfirferð Húnahornsins af fundinum.
Nánari samantekt af fundinum má lesa hér >
