Rökkurganga í Glaumbæ

29. nóvember kl. 15:00-17:00 Hvað er að gerast Glaumbær í Skagafirði
29 nóv
Við ætlum að njóta samveru í rökkrinu í gamla bænum í Glaumbæ sunnudaginn, 29. nóvember ?
Félagar úr Kvæðamannafélaginu Gefjunni og þjóðháttafélaginu Handraðanum taka þátt í að skapa jólastemningu í bænum með kveðskap, kertagerð, tálgun og laufabrauðsskurði. Jólasveinar verða líka á sveimi! ?✨
Þá verður jólastemning í kaffistofu safnsins í Áshúsi þar sem hægt verður að gæða sér á girnilegum veitingum ☕?
Ókeypis verður á safnið á meðan á viðburðinum stendur kl. 15-17. Við hvetjum fólk til þess að mæta með góða skapið og vasaljós, hlökkum til að sjá ykkur!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.