Sumartúr Bríetar
Það er löngu orðinn fastur liður hjá Bríeti að ferðast um landið á sumrin og halda tónleika fyrir landann. Í þetta skiptið ætlar hún að leggja suður- og austurlandið undir sig og gera það með góðum vinum sínum, Magnúsi Jóhanni hljómborðsleikara og Bergi Einari trommara.
Bríet kemur til með að spila nýtt efni í bland við það gamla, íslenskt og enskt.
Það má að búast við heimilislegum tónleikum á ferðalaginu þar sem gestir upplifa nánd og afslappað umhverfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.