Í upphafi skyldi endinn skoða - Fuglavernd með málþing

Að beisla vindinn og nýta til rafmagnsframleiðslu getur hljómað vel í eyrum margra, sérstaklega þegar litið er til þeirrar loftslagsváar sem við stöndum frammi fyrir og nauðsyn þess að beina orkuframleiðsla inn á umhverfisvænni brautir. Litið er til grænna lausna í auknum mæli, en er nýting vindorka eins græn og haldið hefur verið á lofti?

Fuglavernd verður með málþing í næstu viku. 21. mars, um áhrif vindorkugarða á fugla. Á málþinginu verður sjónum beint sérstaklega að mögulegum áhrifum vindorkuvera á fuglalíf á Íslandi. Farið verður yfir stórtækar hugmyndir um vindmyllugarða og hvernig staðsetning þeirra skarast við mikilvæg fuglasvæði á landi og sjó og gætu haft neikvæð áhrif á sumar fuglategundir. Erum við tilbúin að taka slíka áhættu? Gæti opinber stefnumótun og löggjöf komið í veg fyrir umhverfisslys í þessum málum og þá hvernig?

Ib Krag Petersen hjá Árósaháskóla talar um áhrif vindmylla í sjó – sem hann hefur rannsakað um árabil.
Oliver Krone hjá Leibniz Institute for Zoo and Wildlife Research (IZW) í Berlin hefur rannsakað áhrif vindmyllna á fuglalíf um árabil og þá einkum á haferni. Hann er samstarfsmaður okkar á Náttúrufræðistofnun varðandi rannsóknir á ferðum hafarna með senditækjum.
Aðalsteinn Snæþórsson hjá Náttúrustofu Norðausturlands mun fjalla almennt um áhrif vindmyllna á fugla en hann hefur rannsakað það sérstaklega hér á landi, m.a. við Búrfell og þá notað radar til að greina ferðir fuglanna utan sjónsviðs athuganda – og í myrkri !
Kristinn Haukur Skarphéðinsson hjá Náttúrufræðistofnun Íslands fer yfir áform um vindmyllugarða og skoðar skörun við mikilvæg náttúruverndarsvæði, og mikilvægar farfuglaleiðir.

Hér eru svo nánari lýsingar á erindum:

https://fuglavernd.is/vidburdur/ahrif-vindorkuvera-a-fuglalif-radstefna/
https://www.facebook.com/events/239098245132420?ref=newsfeed

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir