Að eldast í Skagafirði, á öðru póstnúmeri en 550

Mig langar að benda á forgangsröðun og þau réttindi sem íbúar Skagafjarðar eiga að búa við en er því miður ekki enn búið að koma í forgang. Skagafjörður getur betur. Lög um grunnþjónustu félagsþjónustu fyrir aldraða á ekki að einangrast við póstnúmer. Lögin eru sett fyrir alla íbúa Íslands. Ef réttindi allra íbúa til grunnþjónustu samkvæmt lögum er ekki forgangsmál, hvað er það þá? „Sveitarstjórn ber að sjá til þess að lögbundnar skyldur séu ræktar“

Lög um öldrunarþjónustu.

Markmið. 1. gr.

Markmið þessara laga er að aldraðir eigi völ á þeirri heilbrigðis- og félagslegu þjónustu sem þeir þurfa á að halda og að hún sé veitt á því þjónustustigi sem er eðlilegast miðað við þörf og ástand hins aldraða. Einnig er markmið laganna að aldraðir geti, eins lengi og unnt er, búið við eðlilegt heimilislíf en að jafnframt sé tryggð nauðsynleg stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf. Við framkvæmd laganna skal þess gætt að aldraðir njóti jafnréttis á við aðra þjóðfélagsþegna og að sjálfsákvörðunarréttur þeirra sé virtur.

Lög um félagsþjónustu.

  1. gr.]1) Sveitarstjórn skal sjá um að félagsþjónusta aldraðra sé fyrir hendi í sveitarfélaginu eftir þörfum. Hér er m.a. átt við heimaþjónustu, félagsráðgjöf og heimsendingu matar. Jafnframt skal tryggja öldruðum aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi. Í því sambandi skal lögð sérstök áhersla á fræðslu og námskeiðahald um réttindi aldraðra og aðlögun að breyttum aðstæðum sem fylgja því að hætta þátttöku á vinnumarkaði. [Sveitarfélagi er ekki skylt að veita þjónustu samkvæmt þessari grein á sjúkrahúsi eða öldrunarstofnun.]

Lög um heilbrigðisþjónustu.

4.3 Næring

  1. Næringarfræðingur sé hluti af teymi heilsugæslustöðva sem sinnir öldruðum, aðlagað að umfangi hverrar stöðvar.
  2. Næringarfræðingur sé hluti af þverfaglegu teymi ríkis og sveitarfélaga sem sinnir heilsueflandi samtölum og metur þarfir aldraðra.
  3. Tryggt sé að öllum öldruðum sem á þurfa að halda, standi daglega til boða heimsendur matur sem miðast við sérstakar næringarþarfir aldraðra.

Hvar liggur hundurinn grafinn?

Í sáttmála um samstarf Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, sem var undirritað fyrir fjórum árum, var einmitt þetta ágæta markmið.

  • Tryggja þarf íbúum Skagafjarðar aðgang að öflugri félagsþjónustu og að allir aldraðir íbúar sveitarfélagsins njóti lögbundinnar þjónustu. Unnið verði að aukinni samþættingu þjónustu til aldraðra á vegum ríkis og sveitarfélags.

Ég hrekk við málsgreinina, allir aldraðir íbúar sveitarfélagsins njóti lögbundinnar þjónustu. Hví þarftu þá að eiga heima í póstnúmerinu 550 í Skagafirði til að fá heimsendan mat.

Hvort sem þjónustuverkefnin eru flókin eða ekki, þá eru alltaf til lausnir. Það þarf ekki að kyngja fílnum í einum munnbita. Skagafjörður er dreifbýll og langar vegalengdir að fara en þetta er hægt í Reykjavík þar sem vegalengdir eru lengri. Þessi mikilvæga þjónusta getur ekki beðið lengur. Það verður að fara í markvissa vinnu að koma henni á laggirnar í þeirri mynd sem hentar hverju svæði og vinna að því að koma til móts við þá sem þjónustuna þiggja með sem bestum hætti.

Heilsuefling aldraðra þarf aukið svigrúm og pláss. Mikill árangur hefur náðst með markvissri hreyfingu og heilsueflingu eldri aldurshópa. En það þarf að vera jafnt aðgengi allra að heilsueflingu. Með því móti er hægt að seinka því að fólk þurfi aðstoð vegna heilsu- og færni taps og draga úr þörf fyrir hjúkrunarrými. Það er mikilvægt að allir búi við eins góða heilsu og kostur er, þar skiptir heilsuefling gríðarlegu máli og næringarríkur matur er mikilvægur partur af heilsueflingu. Velferð og þarfir aldraðra í öllum Skagafirði þarf að vera leiðarljós okkar.

Sveitarfélögum er skylt að veita öldruðum heimaþjónustu, aðgang að félags- og tómstundastarfi og sjá þeim fyrir heimsendingu matar. Þetta er sú grunnþjónusta sem sveitarfélögum ber að veita öldruðum. Þessu er sveitarfélagið okkar því miður ekki að sinna fyrir allan fjörðinn. Aldraðir eru þeir íbúar sem hafa unnið baki brotnu í að byggja upp fjörðinn okkar, borgað mesta útsvarið og eiga skilið virðingu, vellíðan og áhyggjulaust ævikvöld. SKAGAFJÖRÐUR við getum gert BETUR, við VERÐUM að gera BETUR!!!

 

Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir
Höfundur skipar 2. sæti VG og óháðra í Skagafirði

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir