Af gömlum bílum og aðdáendum þeirra - Gunni Rögg skrifar um sérvitringafund í Skagafirði
Það er sérstök kúnst að búa til mikið úr litlu, en sumum er það lagnara en öðrum. Því var það að lítil hugmynd sem bryddað var upp á skömmu fyrir jól varð að veruleika laugardaginn 6. apríl þegar hópur áhugafólks um gamla bíla úr Eyjafirði heimsótti samskonar sérvitringa í Skagafirði.
Upphafið má rekja til þess að Dúddi áburðarsali hjá SS sá gamla bíla allvíða á bæjarhlöðum í Skagafirði og gerði sér far um að kynnast eigendunum nánar. Úr varð nokkurs konar bræðralag sem aukið hefur samskipti þessara áhugahópa verulega. Því tóku þeir sig til Agnar á Miklabæ, Jónsi í Miðhúsum og Ragnar í Hátúni, eða kjarninn úr gömlu 17. júní nefndinni, og buðu til hrossakjötsveislu í safnaðarheimili Miklabæjarkirkju. Í takt við gestalistann var matseðillinn nokkuð sérstakur og á eftir saltaða hrossaketinu var boðið upp á ávexti með sykruðum rjóma, íbættum vanilludropum.
Eftir að hafa drukkið kaffi var haldið í Miðhús og Willysinn hans Jónsa grandskoðaður. Þessi vel heppnaði dagur endaði svo á hópakstri stífbónaðra fornbíla sem endurköstuðu bjarma Blönduhlíðarfjallanna á leið sinni í Kakalaskálann. Þar gaf að líta ótrúlega listsköpun fjölmargra erlendra og innlendra listamanna sem undanfarnar vikur hafa unnið við að glæða Sturlungu lífi með áherslu á Þórð Kakala. Allir voru bergnumdir af því stórvirki sem þau hjón í Kringlumýri hafa unnið að undanfarin ár og héldu til síns heima glaðir í sál og sinni.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá deginum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.