Af hverju ættu karlar að verða leikskólakennarar?

Stutta svar okkar við þessari spurningu væri einfaldlega „hvers vegna ekki“? En ef við tölum í fullri alvöru þá fylgir því að starfa á leikskóla margskonar jákvæður ávinningur. Fyrir það fyrsta myndum við telja leikskólastarfið eitt af þeim störfum sem mögulega gefur hvað mest af sér í ljósi þess að hver vinnudagur er einstakt ævintýri, vinnuvikan flýgur áfram á ógnarhraða auk þess sem enginn dagur í vinnunni er eins.

Þá er vel er vitað og ritað að börn eru vel flest einhverjir mestu gleðigjafar sem hægt er að finna og það að starfa á leikskóla getur alið af sér ótal góðar stundir og minningar sem líklega munu lifa með okkur ævina á enda.

Það er okkar mat að það séu forréttindi í sjálfu sér að starfa á leikskóla og starfa með börnum á leikskólaaldri í leik og starfi, fylgjast með þeim þroskast, takast á við fjölbreytt verkefni, upplifa sigra, ósigra og margt fleira.

Það eitt að geta haft áhrif á nám og þroska barns á hverjum degi og geta síðar séð afrakstur vinnu sinnar, hvort sem er í námi, starfi eða í samfélaginu síðar meir er frábær tilfinning, svo ekki sé minnst á þá samvinnu við foreldra sem síðar á förnum vegi þakka manni fyrir það sem maður hefur gert fyrir barnið þeirra í leikskólanum. Það eitt að hafa haft áhrif í lífi annarra til hins góða er tilfinning sem gefur leikskólastarfinu ómetanlegt gildi. 

Starfið á leikskólum í dag er bæði í senn kennsla og uppeldi, því er nauðsynlegt fyrir stéttina en ekki síður karlmenn að opna á þann möguleika að sinna starfi leikskólakennara eða starfsmanna í leikskóla. Við teljum jafnframt að karlmenn hafi margt fram að færa á sviði leikskólamála meðal annars í formi fyrirmynda breyttra staðalímynda í framtíðinni, það er að leikskóli sé ekki eingöngu vinnustaður fyrir konur og fyrir vikið verður starfið fjölbreyttara ef mannauðurinn er sem fjölbreyttastur. Þar fyrir utan hafa karlmenn margt fram að færa í starfi á leikskóla í formi gæða, kennslu og uppeldis enda erum við sem dæmi margir hverjir fyrirtaks feður. Þar að auki eru karlmenn í leikskólum fyrirmyndir þeirra barna sem hafa að öðru leyti engar karlmanns fyrirmyndir í sínu lífi fyrir utan skólann.

Við teljum það að starfa í leikskólum sé fjölbreytt, skemmtilegt og áhugavert framtíðarstarf. Við skorum á sem flesta (fólk af báðum kynjum) að taka slaginn innan veggja leikskólanna og upplifa gleðina. Þetta var lengra svarið. Lifi leikskólinn!

 Höfundar er tveir nemar á meistarastigi í leikskólakennarafræði við Háskólann á Akureyri. Í byrjun seinasta árs tóku þeir höndum saman og lögðu af stað með verkefnið „Járnkarlarnir“ á samfélagsmiðlunum. Járnkarlarnir eru þeir Eysteinn Sindri Elvarsson og Magnús Hilmar Felixson báðir 33 ára búsettir í Reykjanesbæ og á Dalvík. Hafa þeir einsett sér að fjölga karlmönnum innan raða leikskólakennara. Á samfélagsmiðlunum hafa þeir fjallað um leikskólastarfið frá hinum ýmsu hliðum á fjölbreyttan, lifandi og fræðandi hátt. Þá hafa þeir gefið fylgjendum innsýn í störf sín þar sem fróðleikur, og léttleiki er í fyrirrúmi. Einnig taka þeir fyrir hin ýmsu viðfangsefni sem tengjast leikskólastarfinu með það fyrir augun að vekja athygli á leikskólastarfi. 

Hægt er að fylgjast með Járnkörlunum á eftirfarandi samfélagsmiðlum:
Snapchat: jarnkarlarnir
Facebook: Járnkarlarnir
Instagram: Járnkarlarnir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir