Allt er breytingum háð
Fylgt í blindni
Töluna fjóra ættu flestir Íslendingar að kannast við, hinir fjórir fræknu hafa kastað valdi landsins á milli sín á síðustu áratugum og árum. Við kjósum þetta yfir okkur aftur og aftur, sama hvað gerist eða gerist ekki. En landið okkar sekkur ekki í sæ þó svo við dirfumst að kjósa eitthvað annað en þessa fjóru stóru!
Byggðastefna, byggðastefna, hvar ert þú?
Alþingiskosningarnar í apríl eru þær fyrstu sem ég get kosið í. Þessi spurning brann á vörum mér: “Hvaða flokk get ég, íbúi í 650 manna sjávarþorpi, kosið sem myndi tryggja og bæta framtíð staðarins? Svarið var einfalt: Engan! Ríkið hefur hunsað landsbyggðina of mikið síðustu áratugina. Það fyrsta sem ég lærði í stjórnmálafræði í menntaskóla var að pólitík snýst um það hver er besta leiðinni til að skipta kökunni. Þær leiðir sem þessir fjórir flokkar hafa farið á síðustu árum eru ekki að virka fyrir okkur landsbyggðarfólkið. Miðað við allt hráefnið sem landsbyggðin leggur í kökuna þá fær hún alls ekki nógu stóra sneið til baka. Eins og staðan er í dag þá koma okkar helstu efnahagsverðmæti úr lestum skipa og úr kerum álvera. Það eru skip og álver allan hringinn í kringum landið. Af hverju skiptist ágóðinn þá ekki jafnt?
Sagan talar sínu máli
Það er einfaldlega ekki hægt að neita fyrir sinnuleysi ríkisins í garð landsbyggðarinnar á síðustu árum í hinum ýmsu málum. Þessu til rökstuðnings þá má nefna samgöngumálin, sem eru reyndar efni í aðra grein. Í því sambandi læt ég mér nægja að segja að þessu sinni: Allir þeir sem búa á stað þar sem eina leiðin til og frá er hættulegur fjallvegur, vita að ríkið er með allt niður um sig í samgöngumálum. Ég var kominn á þá skoðun að skila auðu í komandi kosningum, það skipti engu máli hvað ég kysi, ástandið myndi ekkert breytast. Nú hafa hinsvegar mörg ný og fersk framboð komið fram og um að gera að kynna sér stefnumál þeirra. Eitt þeirra framboða er Landsbyggðarflokkurinn sem býður fram lista í norðvesturkjördæmi.
Ég hvet fólk í norðvesturkjördæmi til að kjósa Landsbyggðarflokkinn...
....ef þið viljið geta búið áfram úti á landi og viljið ekki sjá bæjarfélagið ykkar smám saman lognast út af!
......ef þið viljið sjá bæjarfélagið ykkar styrkjast og blómstra!
......ef þið viljið betri kjör, lífsskilyrði og jöfnuð!
.......ef þið unga fólkið viljið geta haldið áfram að búa í heimabæ ykkar!
Þá er öllum ljóst að þá þarf pólitískt afl sem ber hag landsbyggðarinnar fyrir brjósti og berst með kjafti og klóm fyrir hennar hönd á þingi. Landsbyggðarflokkurinn mun svo sannarlega gera það fái hann tækifæri til og það , ólíkt svigrúmi fra vogunarsjóðunum, er öruggt mál.
Ég hvet þig til að kynna þér störf og stefnumál landsbyggðarflokksins á http://www.landsbyggdin.is og fletta upp „Landsbyggðarflokkurinn“ á facebook.
Gauti Skúlason.
Tvítugur Seyðfirðingur og meðlimur í Landsbyggðarflokknum.