Auðlindirnar okkar

Hólmfríður Sigþórsdóttir og Álfhildur Leifsdóttir. MYND AÐSEND
Hólmfríður Sigþórsdóttir og Álfhildur Leifsdóttir. MYND AÐSEND

Flest erum við sammála um að sameign þjóðar á auðlindum eigi að vera meitluð í stjórnarskrá sem og ákvæði um sjálfbæra nýtingu. Umgengni við auðlindir hefur ekki alltaf verið til fyrirmyndar og eru brotalamir í umgjörð. Nú þegar verið er að setja eftir á reglur um nýtingu fjarðanna fyrir lagareldi sést hversu óheppi­legt það er.

Þetta er vonandi víti til varnaðar þegar sárlega þarf að setja umgjörð um nýtingu vinds til orkuöflunar. Göngum varlega fram, tryggjum að náttúran njóti vafans með skýrum lagaramma og viðeigandi reglum um nýtingu. Því miður eru margar áætlanir í vindorku-iðnaði þegar farnar af stað, komnar til umsagnar og í skipulagsferla innan sveitarfélaga. Þetta hefur gerst án þess að Alþingi hafi afgreitt lög og reglugerðir sem varða vindorku-iðnaðinn. Slík ferli eru með öllu óskiljanleg og bendir til þess að djúp gjá sé á milli ríkis og sveitarfélaga.

Ísland er mjög ríkt af raforku í samanburði þjóða en þó fer hvergi jafn lítill hluti af heildar raforkuframleiðslu, eða um 5%, til heimila landsins. Eðlilegt væri að tryggja afhendingaröryggi til heimila með skýrum lagaramma. Í dag velja fjarvarmaveitur að kaupa skerðanlega orku sem er ódýrari en er jafnframt ótryggð. Þetta gengur oftast upp en er ekki í takt við orkuöryggi til heimila og því virðist þurfa að bregðast við með niðurgreiðslu ríkisins. Hér gæti verið viðeigandi að nýta hluta af arðgreiðslum Landsvirkjunar til niðurgreiðslu forgangsorku til fjarvarmaveitna. Eins þarf að bregðast við því að fyrirtæki eins og fiskimjölsverksmiðjur sjái hag sinn í að kaupa olíu til brennslu í stað endurnýjanlegrar orku. Ríkið þarf að tryggja að endurnýjanleg orka sé alltaf hagkvæmasti valkosturinn. Jafnharðan þarf að styrkja aðliggjandi raforkuflutningskerfi til allra uppsjávarvinnsla.

Nú er orkusóun um 8%, sterkara flutningskerfi ætti að stuðla að betri orkunýtingu og eins og fram kemur í skýrslunni Engin orkusóun eru möguleikarnir talsverðir.

Niðurstöður skýrslunnar benda til að hægt sé að ná fram orkusparnaði sem nemur 356 GWst eða um 2% af heildarorkunotkun ársins 2022, með tækni sem nú þegar er til staðar og án mikils fjárhagslegs kostnaðar. Sparnaðinum má til að mynda ná fram með notkun díóðulýsingar, orkunýtnari rafmagnstækjum, bættri loftkælingu, meiri loftræstingu og hugbúnaðarkerfi sem miðar að orkunýtni bygginga. Miklir möguleikar á orkusparnaði eru líka í áliðnaðinum og samkvæmt fyrrnefndri skýrslu þykir líklegt að meira en 24% (112 GWst) af orkusparnaðar eigi eftir að raungerast í tengslum við álverin á næsta áratug. Spennandi tækifæri felast í notkun glatvarma, hann má endurnýta til að framleiða rafmagn eða til húshitunar á köldum svæðum. Einnig eru miklir möguleikar bæði í virkjun sólarljóss og sjávarfalla, nágranna þjóðirnar eru komnar lengra í nýtingu á þeirri grænu orku.

Umfram allt þarf áhersla í orkusölu að beinist til innlendra orkuskipta, það auðveldar að staðið sé við alþjóðlegar skuldbindingar og hefur þar með keðjuverkandi áhrif á velsæld.

Álfhildur Leifsdóttir, formaður Sveitarstjórnarráðs VG & stjórnarkona Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs

Hólmfríður Sigþórsdóttir er líffræðikennari, umhverfis- og auðlindafræðingur
& flokkráðsfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir