Birna Lárusdóttir í 1-2. sæti

Halldór Halldórsson

Það er glæsilegur hópur sem býður fram krafta sína fyrir okkur íbúa Norðvesturkjördæmis. Í þeim hópi er samstarfsmaður minn og félagi, Birna Lárusdóttir, en undanfarin 11 ár höfum við unnið saman að bæjarmálum í Ísafjarðarbæ. Fyrir þann tíma þekkti ég hana ekki en hafði eins og aðrir oft heyrt hana tala sem fréttamaður í útvarpinu. ,,Þetta er Birna Lárusdóttir sem talar frá Osló“.

Samstarfið við Birnu hefur verið einstaklega gott enda er hún fylgin sér og traust. Þegar ákvörðun hefur verið tekin í málum þá fylgir hún þeim eftir og veitir þeim stuðning sinn. Þannig er hún og þannig vinnur hún. Alltaf samkvæm sjálfri sér - alltaf traust.

Ég tel að Birna eigi erindi á Alþingi. Þetta segi ég vegna þess að ég þekki hana og hef unnið með henni við að stýra sveitarfélagi sem hefur gengið í gegnum margvíslega erfiðleika og oft verið á brattann að sækja. Sú reynsla er verðmæt þegar kemur að því að takast á við þá erfiðleika sem íslenska þjóðin stendur frammi fyrir núna.

Ég hvet sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi til að setja Birnu Lárusdóttur í 1.-2. sæti í prófkjörinu 21. mars.

Halldór Halldórsson
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir