Einar Kristinn leiði listann. Grein eftir Gísla Gunnarsson

Gísli Gunnarsson

Það var góður fundur haldinn í félagsheimilinu Ljósheimum í Skagafirði miðvikudagskvöldið 11. mars.
Mættir voru 15 af 17 frambjóðendum til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi
til þess að kynna sig og áherslur sínar fyrir kjósendum.


Nýtt fyrirkomulag fundarins var með þeim hætti að hver og einn fundargestur gat talað við
alla frambjóðendur og sköpuðust af því fjörugar umræður við hvert borð í salnum.
Í stuttu máli sagt fannst mér allir frambjóðendur standa sig vel, koma vel fyrir og
svara þeim spurningum ágætlega sem fyrir þá var lagt.
Við getum því verið ánægð og bjartsýn og þakklát þessu fólki sem tilbúið er að
starfa fyrir land og þjóð á erfiðum tímum og ekki verður auðvelt að gera upp á
milli manna, karla og kvenna, laugardaginn 21. mars n.k.
 
Aðeins einn frambjóðendanna er núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
fyrrverandi ráðherra, Einar Kristinn Guðfinnsson. Hann býður sig fram í fyrsta sæti
listans og ég tel farsælt fyrir kjördæmið að hann fái góða kosningu í forystusætið.
Sem forseti sveitarsjórnar Skagafjarðar í tvö kjörtímabil hafði ég mjög góða
reynslu af samstarfi við Einar Kristinn á ýmsum sviðum og treysti honum til allra góðra verka.
Hann þekkir vel til alls kjördæmisins og hefur sýnt það bæði sem sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra að hann stendur vel undir ábyrgð.
 
Erfiðir tímar fara nú í hönd í samfélagi okkar, en einnig tímar ýmiss konar tækifæra.
Endurskoða þarf siðferðilegt mat og móta þarf nýtt og réttlátt samfélag.
Við þá vinnu þarf fólk með reynslu ásamt nýjum starfskröftum.
Sagt hefur verið að gott sé fyrir einstaklinga að eiga bæði rætur og vængi.
Það þarf listi Sjálfstæðisflokksins einnig að hafa og veitum Einari Kristni
skýrt umboð til að leiða glæsilegan lista í Norðvesturkjördæmi.
 
Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir