Fæðingaorlof í 12 mánuði

Á dögunum mælti félags- og barnamálaráðherra fyrir frumvarpi um fæðingar- og feðraorlof þar sem lagðar eru til breytingar um lengingu á fæðingarorlofi í 12 mánuði og er það í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og lífskjarasamninga á almennum vinnumarkaði frá því í vor. Að sama skapi er lagt til að sá tími sem foreldrar eiga rétt á greiðslu fæðingarstyrks lengist um þrjá mánuði. 

Hér er verið að stíga mikilvægt skref sem verður að fullu komið á árið 2021. Þetta er í samræmi við tillögur starfshóps um framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum sem skilaði í mars 2016 tillögum sínum til þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra.

Það kemur ekki á óvart að þetta sé komið til framkvæmda núna á vakt Framsóknarflokksins í ráðuneytinu. Framsóknarflokkurinn hefur á sinni vakt í þessu ráðuneyti stigið stór skref til að bæta réttindi verðandi foreldra og það var Páll Pétursson, þáverandi félagsmálaráðherra, sem kom því í lög árið 2001 að feður skyldu líka eiga rétt á að taka foreldraorlof. Það þótti mikilvægt að binda í lög rétt barnsins að fá að umgangast báða foreldra sína á fyrstu mánuðum lífs síns.

Tímamótaáfangi

Í sameiginlegri umsögn prófessors í félagsráðgjöf og dósents í félagsfræði við Háskóla Íslands um frumvarpið kemur meðal annars fram að lengingin á rétti foreldra til fæðingarorlofs sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu sé tímamótaáfangi til hagsbóta fyrir fjölskyldur í þágu hagsmuna barna og foreldrajafnréttis. Jafnframt kemur fram að ítrekaðar kannanir meðal foreldra sýni að sjálfstæður réttur foreldra til fæðingarorlofs sé sérstaklega mikilvægur þegar fjölskyldur deila ekki lögheimili, en stór hluti feðra sem deilir ekki lögheimili með börnum sínum nýtir sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs.

Bilið brúað

Lenging fæðingaorlofs auðveldar foreldrum að brúa bilið eftir að fæðingarorlofi lýkur þar til börnin fá leikskólapláss.  Þetta bil hefur verið streituvaldandi fyrir foreldra og valdið því að foreldrar, og þá sérstaklega konur, hafa dottið út af vinnumarkaði um tíma. Víða um land eru sveitarfélögin farin að bjóða upp á leikskólapláss allt niður í 12 mánaða aldur.

Á næsta ári verða 20 ár liðin frá gildistöku laga um fæðingaorlof. Það er því við hæfi að þessum áfanga verði náð í lok næsta árs.  Félags- og barnamálaráðherra hefur sett af stað vinnu við heildarendurskoðun fæðingaorlofslaganna í samráði við hagsmunaaðila. Þeirri nefnd stýrir Friðrik Már Sigurðsson, formaður byggðarráðs Húnaþings vestra. Sú endurskoðun er í samræmi við stefnu stjórnvalda um  að efla fæðingarorlofskerfið. Þess er vænst að þeirri vinnu verði lokið á næsta ári og breytingar verði settar fram í nýju frumvarpi í lok ársins. 

 

Halla Signý Kristjánsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir