Fjárlög 2023 – Sterk staða ríkissjóðs sem þarf að verja

Það er fastur liður í aðventudagskrá Alþingis að fjalla um og samþykkja fjárlög fyrir komandi ár. Í upphafi kjörtímabils voru krefjandi tímar fram undan, heimsfaraldur stóð yfir og sama dag og takmörkunum var aflétt hér á landi réðust Rússar inn í Úkraínu. Þessir þættir hafa skapað óvissu bæði hér innanlands sem og í Evrópu. Eðli málsins samkvæmt er það ekki óeðlilegt í ástandi sem þessu að verðbólga og hækkun á aðföngum taki sér pláss í fjárlögum líkt og í heimilisrekstri landsmanna. Staðan í efnahagsmálum í Evrópu er erfiðari en lengi hefur verið.

Skýr afkomubati

Þrátt fyrir þessar staðreyndir er það markmið ríkisstjórnarinnar að verja sterka stöðu ríkissjóðs með því að lækka rekstrarhalla og stöðva hækkun skuldahlutfalls á næsta ári. Í framlögðum fjárlögum má finna skynsamleg skef framávið sem lúta að því að styrkja áfram innviði og grunnþjónustu í landinu en það er sterkur leikur til að verja kaupmátt landsmanna. Þá má einnig finna að dregið er úr útgjöldum enda var verulega bætt í útgjöld til að verja störf og heimili í gegnum heimsfaraldurinn. Það er mikilvægt skref til að vinna gegn verðbólgu þegar horft er til næstu missera í þjóðarbúskapnum. Í fjárlögum næsta árs eru þó jákvæð teikn á lofti um að við séum að vaxa út úr þeim stóru verkefnum sem við höfum staðið frammi fyrir og að viðsnúningur geti orðið hraður ef rétt er haldið á spöðunum.

Treystum heilbrigðisþjónustu

Heilbrigðiskerfið með öllu sínu frábæra starfsfólki hefur staðið sem klettur í gegnum heimsfaraldur þrátt fyrir mikla ágjöf. En svo það geti staðið sterkt áfram þarf að bæta verulega í málaflokkinn. Við erum enn að glíma við eftirköstin eftir faraldurinn og þá þurfum við einnig að mæta næstu áskorun sem er fjölgun landsmanna og stækkandi hópur eldra fólks. Auk þess er til staðar uppsöfnuð þjónustuþörf eftir COVID. Ríkisstjórnin stendur með heilbrigðiskerfinu en framlög til heilbrigðismála hækka um 17,4 ma.kr. á næsta ári. Þar vegur þyngst 6.8 ma.kr raunhækkun til heilbrigðisstofnana og sjúkratrygginga til að koma til móts við aukna eftirspurn og öldrun þjóðarinnar. Þá verður áfram haldið við að styrkja heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað innan heilbrigðiskerfisins með 2. ma. viðbótarframlagi auk þess sem horft er til þess að efla heimahjúkrun.

Hitaveita í Skagafirði

Umtalsverðar framkvæmdir hafa staðið yfir á Norðurlandi vestra við lagningu hitaveitu. Með aukinni hitaveituvæðingu á svæðinu breytast búsetuskilyrði á svæðinu töluvert. Bæði fyrir heimili og atvinnustarfsemi. Það er ljóst að fólk er í auknum mæli að sækja í búsetu í dreifbýlið aftur, með ljósleiðaravæðingu og bættum samgöngum er það orðin ákjósanlegur kostur. Það er mikilvægt að nýta sem best þær auðlindir sem bjóðast til að auka á búsetukost svæðisins. Í fjárlögum er tryggt að Sveitarfélaginu Skagafirði verði veitt 88 m.kr. tímabundið framlag vegna framkvæmda við lagningu stofnlagnar hitaveitu frá Langhúsum í Fljótum að Hrolleifsdal. Það er liður í hröðun og markvissu áframhaldi á verkefnið í heild.

Dreifinám styrkt

Mikilvægi dreifináms fyrir nemendur á þeim þéttbýlisstöðum sem ekki eiga þess kost að sækja skóla heiman frá sér er mikilvægt byggðamál. Samningar eru milli framhaldsskóla, sveitarfélaga og menntamálaráðuneytisins á nokkrum stöðum á landinu. Það er ljóst að sveitarfélög hafa lagt í töluverðan kostnað umfram þess fjármagns sem hefur fengið til verksins og hafa því lagt nokkuð á sig til að jafna aðstöðu nemenda óháð búsetu með þessum hætti. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er með þrjú útibú: Blönduósi , Hvammstanga og Hólmavík og eru nemendur ánægðir með þjónustuna enda gott að tengjast öflugum skóla í sínu námi. Í fjárlögum næsta árs er dreifinámið styrkt en þar má finna 8 m.kr. framlag til Húnaþings vestra vegna kostnaðar sveitarfélagsins við rekstur dreifnámsdeildar á Hvammstanga.

Löggæsla efld

Áform eru uppi um að styrkja lögregluna um allt land með því að dreifa verkefnum á lögregluembættin út um landið og dreifa þannig álaginu. Á sama tíma á að styrkja grunnviðbragð lögregluembættanna á landsbyggðunum. Auk þess sem meirihluti fjárlaganefndar lagði til aukna fjárheimild upp á 200 milljónir til að draga úr aðhaldskröfu á lögregluna.

Velferðarfjárlög

Heilt yfir getum við horft til þess að fjárlög fyrir árið 2023 séu velferðarfjárlög, þar má m.a. finna hækkun á frítekjumarki atvinnutekna örorku og endurhæfingalífeyrisþegar í 200 þús , aukið kastljós á heilbrigðiskerfið, tímabundið framlag til sveitarfélaga vegna samræmda móttöku flóttamanna og ásamt sérstöku úrræði í tengslum við móttöku flóttabarna.

Sterk landsbyggð tekur á móti nýjum áskorunum

Við horfum fram á veginn inn í nýja framtíð. Við sjáum það nú að stuðningur stjórnvalda í gegnum heimsfaraldur við atvinnulífið og fjölskyldur í landinu skilaði því að við komum standandi niður eftir heimsfaraldur og stöndum mun betur en margar aðrar þjóðir. Með mörgum ákveðnum og markvissum skrefum voru settir saman aðgerðarpakkar til að verja fólk og fyrirtæki. Áfram verða þó til staðar áskoranir sem takast þarf á við, en þetta ár hefur sýnt að byggðarlög um land allt eru tilbúin í að nýta sér þau tækifæri og sérstöðu sem þau búa við, til að vaxa áfram og dafna.
Áfram veginn.

Stefán Vagn Stefánsson
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
Halla Signý Kristjánsdóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir